Veðurpólitík

Hérna á Reyðarfirði er aldeilis ótrúlegt veður þessa stundina. 20 stiga hiti og glampandi sól. Kl. 9 í morgunn voru þegar komin 16 stig, hvílík dýrð. Þegar ég skoðaði veðrið í Evrópu áðan þá sýndist mér að Reyðarfjörður væri "heitasti" staðurinn.

 Mér datt í hug þegar ég horfði á hádegisfréttatímann á st2 og sá að ekki var minnst orði á þessa veðurblíðu hér, (sem þó held ég að hljóti að teljast frétt svona í byrjun apríl), ekki einu sinni í veðurfréttatímanum, að sennilega hefðu þessi ósköp verið fyrsta frétt dagsins ef þetta hefði verið á suðvesturhorninu. Kannski er þetta bara eðlilegt. Ég landsbyggðatúttan að svekkja mig eitthvað á þessu. Það er ekki oft sem Íslendingar geta grobbað sig af veðrinu... svo ég varð Cool

Ég hef svo sem heyrt fleira landsbyggðarfólk minnast á þetta og þetta getur skipt máli t.d. á sumrin þegar ferðafólk tekur kúrsinn eftir veðrinu. Veðurstöðvar eru gjarnan staðsettar á annnesjum sem gefa e.t.v. kolranga mynd af veðrinu þegar inn á firðina er komið. Hversu oft sjáum við ekki á veðurkortum 7-8 stiga hita á Vestfjörðum en svo er 15-20 stiga hiti í fjarðarbotnum.

Svona í vísindalegu tilliti er eflaust rétt að mæla veðrið þar sem það er gert, en í mannlegu tilliti ættu veðurfræðingarnir frekar að sýna okkur tölurnar þar sem þær skipta okkur mestu máli.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Fyrsta frétt sem ég sá að morgni 1. apríl var að á Seyðisfirði hefði verið 12 stiga hiti í morgunsárið - og ég hélt að það væri aprílgabb. Ætli fréttastofunum þyki tíðindin ekki orðin gömul, hömm humm.

Berglind Steinsdóttir, 3.4.2007 kl. 17:10

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Sjáðu, Gunnar, mbl.is hefur lesið bloggið þitt!

Berglind Steinsdóttir, 3.4.2007 kl. 17:46

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

haha já... en st2 þráast við

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.4.2007 kl. 19:01

4 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

20 stiga hiti?? Ertekkiaðgrínast?

Brynja Hjaltadóttir, 3.4.2007 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband