Það var viðtal við Halldór Halldórsson bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar í Íslandi í dag. Þessi góði og gegni Sjálfstæðismaður vann Smára Geirsson Samfylkingarmann úr Fjarðabyggð í kosningu til formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir ekki svo margt löngu síðan.
Sagt er að kjörgengir í SíS úr röðum Samfylkingar og VG hafi kosið Sjálfstæðismanninn fram yfir Samfylkingarmanninn af því sá síðarnefndi hafði á sér stimpil stóriðju. Vestfirðingar hafi hins vegar lýst sitt heimahérað stóriðjuslaust enda geta þeir ekki annað. Þeir hafa engar orkuöflunarleiðr til stóriðju svo það er sjálfgefið.
Árið 2003 þegar bylgja mótmæla gekk yfir vegna Kárahnjúka og álvers í Reyðarfirði þá kallaði Halldór eftir þeim hugmyndum og tækifærum sem virkjunarandstæðingar sögðust sjá í atvinnusköpun á austfjörðum annari en í stóriðju. Náttúruverndarsinnar fullyrtu það að þeir gætu skapað 700 störf ef það yrði hætt við virkjun og álver á Reyðarfirði. ( Störfin eru reyndar um 930 í beinum tengslum við álverið auk fjölmargra afleiddra óbeinna starfa)
Viðbrögðin við ákalli Halldórs voru mjög góð. Yfir 50 manns hringdu vestur. Þá spurði Inga Lind " en hefur eitthvað gerst?"...örstutt þögn hjá Halldóri...neiiii, svo færðist bros yfir andlit hans og hann bætti við... það hefur ekkert gerst.
Umhverfisverndarsinnar hafa náð ágætum árangri í að mótmæla. En þeir hafa ekki náð neinum árangri í öðru. Þetta fólk sem mótmælti fyrir austan, það kom ekkert vestur með nein úrræði í atvinnusköpun þar.
Halldór leifði sér að fullyrða að ef Vestfirðingar hefðu kosið um nokkur hundruð störf þar þá hefði niðurstaðan verið önnur en í Hafnarfirði. Halldór sagði að ekki fyrir svo löngu hefði fiskistofa verið flutt til Hafnarfjarðar og það væri spurning hvort Hafnfirðingar væru ekki tilbúnir að senda þeim hana fyrst þeir þurfa ekkert þessi störf í álverinu. Hafnfirðingar þurfa ekki störf sagði Halldór, en við þurfum þau.
Það eru ekki allir landsmenn sem þurfa að glíma við lúxusvandamál eins og Hafnfirðingar.
Flokkur: Bloggar | 2.4.2007 (breytt 3.4.2007 kl. 01:46) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum
- Flokkur fólksins
- Að tapa sigrinum
Athugasemdir
Góður.
Baldvin Baldvinsson (IP-tala skráð) 3.4.2007 kl. 09:15
Sæll Gunnar! Mér fannst gaman að lesa sjá skoðanir einhvers sem býr fyrir austan á stjóriðjumálum. Ég er þeirrar skoðunar að allt of lítið heyrist um þá miklu uppbyggingu sem á sér stað eftir alla neikvæðu umræðuna að austan á undanförnum áru.
Ég er annars frekar vel settur, þar sem frænka mín, sem er að skrifa meistaraprófs ritgerð sína, var ráðin til álversins og flutti austur fyrir um ári og segir ótrúlega bjartsýni ríkja fyrir austan. Þið þyrftuð að láta heyra meira í ykkur!
Hér í Reykjanesbæ verða raddirnar á móti álveri æ háværari og fólk er einhvern veginn orðið hálf veruleikafyrrt?
Kveðja, Guðbjörn Guðbjörnsson
Guðbjörn Guðbjörnsson, 4.4.2007 kl. 15:36
Takk fyrir þetta. Þetta er það sem m.a. gefur þessu gildi, að fá viðbrögð við skrifum sínum
Gunnar Th. Gunnarsson, 4.4.2007 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.