Afturhaldskommarnir vekja með mér ugg um að þeir marki djúp spor sem hræða alla fjárfesta frá landinu. Orðspor íslensku kommanna hefur reyndar þegar borist út fyrir landsteinana til erlendra fjárfesta, eins og fjölmiðlar hafa greint frá.
Ögmundur er hræddur um að þetta séu einhverjir loftkastalar hjá Kínverjanum. Hvers vegna sýnir Ögmundur þessa umhyggju fyrir peningum moldríks manns? Vill hann passa að Kínverjinn fari sér ekki að voða, með því að kasta peningum sínum í fjárfestingar á Íslandi?
Ef miljarða fjárfestirinn Huang Nubo, frá Kína, vill taka áhættu með fjárfestingum sínum á Íslandi, þá eru það hans peningar sem eru lagðir undir en ekki Ögmundar... eða annarra Íslendinga.
Ath. Ný skoðanakönnun hér til hægri, endilega takið þátt.
Sporin hræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 8.11.2011 (breytt kl. 15:59) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 945804
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Knockin' On Heaven's Door
- Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar 2024
- Sósíalistaflokkur Íslands - tilraun númer tvö!
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna kemur NÝJASTA TÆKNITEIKNINGIN af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024:
- Úr munni hestsins
Athugasemdir
Alveg er ég sammála þér. Fyrir utan það að þetta er með eindæmum ákvarðanafælin ríkisstjórn... allt á kostnað þjóðarinnar.
(netauga), 8.11.2011 kl. 15:08
Ögmundur er tímaskekkja og risaeðla. Úr VG.
Hvumpinn, 8.11.2011 kl. 15:20
Minnast má þess að einn japanskur auðmaður gerði sér lítið fyrir og keypti Empire State Building í New York. Fannst þá mörgum nóg komið. Aðrir sögðu, látum hann bara kaupa slotið, ekki tekur hann það með sér. Við getum vel notað peningana. Byggingin var ekki lengi í hans eign. Hann hefur sennilega ekki áttað sig á gildandi lög viðkomandi ríkis gilda. En ekki hans.
Hvað með fjárfestingar útlendinga í álverum. Ekki taka þeir gillið með sér. Virkjanirnar falla i skaut islendinga uppfyllingu tímans.
Björn Emilsson, 8.11.2011 kl. 16:14
Er þetta ekki svakalega stór jörð sem þessi maður vill kaupa undir eitt hótel...
Það er ekkert að því að leiga honum landsvæði til nokkra tugi ára ef vel gengur hjá honum en það þarf ekki að selja honum eitt stykki auðlind eins og margir eru að reyna að benda okkur á...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 8.11.2011 kl. 16:30
Hvaða auðlind, Ingibjörg? Hann vill af sala sér öllum vatnsréttindum.
Ég held að það sé ekki raunhæft að byggja hótel fyrir einhverja miljarða, nema trygging sé fyrir því að það fái að starfa a.m.k. vel út afskriftartíma sinn.
Segjum að leigan á Grímsstöðum væri til 40 ára, þá er fjárfestingin nánast verðlaus og ósöluhæf eftir 20-30 ár. Engin er tilbúin að kaupa hótel fyrir miljarða sem ekki hefur öruggt rekstrarumhverfi nema í 10-20 ár.
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.11.2011 kl. 17:57
Og ef leigan er til 99 ára, er þá ekki alveg eins gott að selja? Þannig fæst meira verðmæti fyrir eignina og eins og Björn Emil bendir á, ekki tekur hann jörðina með sér til Kína.
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.11.2011 kl. 17:59
Loksins erum við sammála
Einar Bragi Bragason., 8.11.2011 kl. 22:05
Ég vissi að það kæmi að því
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.11.2011 kl. 23:27
Gunnar minn, þessi umræða er svo einfeldnigsleg að mínu viti að það liggur við að maður tárist.
Hvað haldið þið að fyrrverandi, einn af æðstu prestum kínversks stjórnkerfis sé að vilja upp á dekk hérna uppi á Íslandi. Það gengur enginn, ég endurtek enginn úr flokknum, og gerist stórkapitalisti í útlöndum. Flokkurinn ræður algerlega hver kemst í álnir og hver ekki, og enginn sleppur ekkert undan honum.
Fólk virðist ekki átta sig á því hverslags einræði þetta er.
Hefur ekkert ykkar fylgst með því sem Kínverjar eru að gera í Afríku? Arðránin og núna það nýjasta að ætla sér að flytja þar inn fólk, þó ekki nema 250 millj. manns að talið er. Þið ættuð að léttkynna ykkur það áður en þið kvetjið Íslendinga til að hlaupa í fangið á þeim með manni og mús.
Kínverjar sýna aldrei sitt rétta andlit, hvorki stjórnvöld né almenningur Almenningur vegna hræðslu við stjórnvöld, sem stjórna öllu með ógnarhendi, og stjórnvöld vegna þess að þau hafa töglin og hagldirnar.
Ekki láta ykkur detta í hug að það hangi ekki eitthvað meira á spýtunni en áhugi eins manns á einni jörð, úti í rassgati. Nei þetta er líklega bara byrjunin á einhverru miklu meira og verra, jafnvel svo slæmu að við munum iðrast þess um aldur og ævi.
Ef við segjum já, og maðurinn byrjar að byggja eitthvað voða spennandi, verða alli,r jafn voða kátir, og þegar hann vill fá meira, segja allir já, jafn voða kátir, og þannig heldur þetta áfram þar til Kínverska Alþýðulýðveldið sýnir okkur krumluna, en þá eigum við ekki afturkvæmt.
Ögmundur hefur aldrei verið minn maður, en ég stend með honum í þessu máli og vona að hann og flokksmenn hans í ríkisstjórn segi blátt NEI.
Landið okkar er svo miklu meira virði en svo að við eigum að hlaupa að svona vafasömum tilboðum, til þess eins að reyna að græða enn og aftur.
Bergljót Gunnarsdóttir, 9.11.2011 kl. 01:36
Ótrúlegt kjaftæði er þetta í þér Bergljót, komunistafælnin alveg í hámarki hjá þér. Hvað segirðu þá um Bandarísku kapítalistana sem hafa verið að fjárfesta hér á landi og plantandi niður viðbjóðslegum stóriðjuverum um allt land svo ekki sé nú talað um Magma málið þar sem bandaríkjamaður stofnaði skúffufyrirtæki til að kaupa auðlindina okkar, ætli Bandarísk stjórnvöld standi ekki á bakvið það. Var svo að heyra það einmitt frá Kínverja sem býr hér, að hann hafi heyrt það að þessu Nupo hafi verið að kaupa land í Danmörku og að hann sé alvarlega að spá í að hætta við kaupin hér á landi.
Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 9.11.2011 kl. 10:21
Þú getur kallað það hvað sem þú vilt. En eitt er víst að ég treysti ekki Kínverjum í þessu máli. Ég segi: Einn slæmur gjörningur afsakar ekki annan jafnslæman. Ég vona svo sannarlega að að satt reynist og hann hætti við kaupin, en ekki óska ég Dönum þess að fá þetta yfir sig.
Bergljót Gunnarsdóttir, 9.11.2011 kl. 10:32
Óþarfa áhyggjur B ergljót.
Helgi Rúnar, "viðbjóðslegum stóriðjuverum".... hahaha, bandarískir kapitalistar að "planta niður.... um allt land".
Þú ert óborganlegur
Svo sakarðu Bergljótu um að vera "kommúnistafælin".
Gunnar Th. Gunnarsson, 9.11.2011 kl. 11:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.