Ég keyrði nýverið indverskan mann sem búsettur er á Nýja Sjálandi. Hann sagðist vera rafmagnsverkfræðingur og kom til Reyðarfjarðar vegna eldsvoðans sem varð í álverinu þann 18. desember s.l.
Á leið okkar til Egilsstaðaflugvallar áttum við skemmtilegt spjall saman. Ég sagði honum að dóttir mín væri í heimsreisu með tveimur vinkonum sínum. Þær voru nýfarnar frá Cook eyju í kyrrahafi og væru nú staddar á Nýja Sjálandi.
Ég sagði honum að stelpurnar lýstu bæði Cook eyju og Norðureyju Nýja Sjálands sem Paradís á jörðu.
Indverjinn horfði á umhverfið í Reyðarfirði fyrir botni fjarðarins. Frekar hráslagalegt var um að litast og ekkert sérlega gott skyggni, þó vel sæist til fjallstoppanna í kring. Andlit hans ljómaði þegar hann sagði: "This is Paradise".
Svo sagði hann mér að hann væri gjörsamlega heillaður af þessu umhverfi og að hann væri harðákveðinn í því að koma með fjölskyldu sína til Íslands í sumarfrí á komandi sumri.
Maðurinn átti ekki orð til að lýsa hrifningu sinni og ég neita því ekki að örlítið þjóðernisstolt gerði vart við sig í brjósti mínu.
Minni myndin hér að ofan er frá Nýja Sjálandi en myndina hér næst fyrir neðan, tók Ásgeir Metúsalemsson, tengdafaðir minn, af Hallberutindi í Reyðarfirði.
Önnur mynd eftir Ágeir Met.
Orðlaus yfir Vatnajökli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 81
- Frá upphafi: 946219
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 76
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Aðgerðablaðamennska Morgunblaðsins
- Stelirðu miklu og standir þú hátt.
- Pæling II
- ALLT SANN-KRISTIÐ FÓLK Í USA HLÝTUR AÐ FAGNA SVONA YFIRLÝSINGUM : "AÐEINS VERÐI TVÖ KYN VIÐURKENND Í KERFUNUM":
- Svikarar fólksins
- Passar hún?
- Blaðamaður skólar pólitískan froðusnakk
- Kristín Elfa Guðnadóttir kennari er fyrirmynd góðra kennara...eða!
- Samkeppni við Kína skapar vanda fyrir fatageirann í Bangladess
- Pæling I
Athugasemdir
Þessu hef ég líka tekið eftir Gunnar. Austfirðirnir eru paradís og það eru forréttindi að hafa tækifæri til að búa í listaverki.
Magnús Sigurðsson, 18.3.2011 kl. 00:15
það mun alltaf hver líta sínum augum silfrið, hvaðan sem það verður skoðað!
Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.3.2011 kl. 03:26
Vestfirðir eru paradís og... Frakkland ! Ég get ekki gert upp á mili.
Eva franska (IP-tala skráð) 18.3.2011 kl. 20:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.