Þarf hann að skila hagnaðinum?

.... ef ekki, tja...Er hann þá ekki bara í slökun á Kvíabryggju og skrifar "sjálfssakleysisbók" sem kemur út um jólin? Errm


mbl.is Krefst tveggja ára fangelsis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Er og djúpt tekið í árinni þegar minnst er á siðræna úrkynjun víða á efri?! stigum samfélagsins?

Árni Gunnarsson, 14.3.2011 kl. 12:26

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mennirnir eru breyskir.

-

Það stendur reyndar neðst í  fréttinni að Baldur eigi að skila hagnaðinum. Sá það ekki fyrst þegar ég las fréttina. Er helst á því að því hafi verið bætt við.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.3.2011 kl. 12:32

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Líklega verður að gera ráð fyrir því að hann skili hagnaðinum verði hann dæmdur sekur. Annars má segja að þetta mál Baldurs sé að nokkru prófmál þegar talað er um hliðstæður.

Það er því full ástæða til að vanda vel til þessa dómsúrskurðar.

Sem ævinlega vitaskuld.

Árni Gunnarsson, 14.3.2011 kl. 14:49

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála, Árni

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.3.2011 kl. 18:20

5 Smámynd: dh

Var ekki einhver útgerðarkona úr Eyjum einmitt líka ótrúlega heppin með tímasetningu á sölu á bréfum sínum í Glitni?

Var ekki sama útgerðarkona að fjárfesta í einum skuttogara nú á dögunum?

Einhver pólítísk pest af þessu öllu saman, finnst manni.

dh, 14.3.2011 kl. 21:44

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Baldur getur þá fetað í fótspor annars hvítflibba sem dreif í því að skipta um dýnur í rúmum fanganna á bryggjunni og annað sósjal. Svo er beina brautin inn á þing í framhaldinu.

Ef Baldur verður dæmdur sekur, þá er ljóst að hann telst sannarlega hafa blekkt kaupanda bréfanna, þá er sjálfgefið að mínu viti að sá aðili fái sitt fé til baka en ekki ríkið. Ef ríkið gerir peningana upptæka er það að láta fórnarlamb Baldurs borga fyrir hann sektina. Sjá mína færslu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.3.2011 kl. 08:57

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Árni það er vissulega góður siður að vanda dóma. En svo er að sjá að tekin hafi verið upp sú stefna hér á landi að hafa megi Hæstaréttadóma að engu, líki mönnum ekki niðurstaðan.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.3.2011 kl. 09:00

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Fara ekki hlutabréf í "pott" þegar þau eru seld? Ég held að bréf Baldurs hafi ekki farið til einhvers sérstaks kaupanda.... annars þekki ég þetta svo sem ekkert og hef aldrei braskað með hlutabréf.

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.3.2011 kl. 10:32

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það eru mestar líkur á að bréfin hafi farið beint til ákveðins kaupanda, þó einhver miðlari hafi annast milligönguna, stærð "pakkans" getur haft áhrif á gengið á "pakkanum"

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.3.2011 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband