Gylfi eða Lexi

gylfiMín ágiskun er að Gylfi Þór Sigurðsson eða Alexander Peterson verði fyrir valinu.

Alexander hefur verið prímusmótorinn í sigursælu handboltaliði okkar. Nú stendur hann á þrítugu og fyrir hans dyggu þjónustu undanfarin ár, sem jafnbesti leikmaður liðsins (oft besti), ætti hann það skilið að vera valinn. Hver man ekki eftir varnartlexiilburðum hans á móti Pólverjum? Annað eins hefur sjaldan sést á handboltavellinu. Að veita Alexander verðlaunin væri þakklætisvottur fyrir það sem hann hefur gert fyrir land og þjóð.

Gylfi er besti knattspyrnumaður Íslands og hugarfar drengsins er aðdáunarvert. Ekkert vesen... enginn vírus þar. En hann er ungur og á framtíðina fyrir sér. Hann getur alveg beðið í eitt ár.


mbl.is Tíu efstu í kjöri íþróttamanns ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlynur Bæringsson hlýtur að vera sterkur kandidat. Yfirburðamaður í Íslenskum körfubolta og treður nú yfir Svía.

Gunnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.12.2010 kl. 20:33

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Kannski

Hef reyndar engan áhuga á körfubolta. Mér finnst "óspennandi" að leikmenn í boltaíþrótt megi varla snerta hvorn annan.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.12.2010 kl. 21:01

3 Smámynd: Pétur Kristinsson

Og af því að þú hefur ekki áhuga á körfubolta að þá finnst þér Hlynur koma síður til greina?

 Annars ættir þú að velta því fyrir þér af hverju menn eins og Shaquille O'Neal, Karl Malone hafi litið út eins og kraftlyftingamenn í íþrótt án snertingar :)

Pétur Kristinsson, 26.12.2010 kl. 21:49

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hlynur kemur alveg til greina ... þó ég hafi ekki áhuga á körfubolta.

NBA karlarnir eru dálítið steralegir, ég viðurkenni það.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.12.2010 kl. 03:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband