Sömu vinnubrögð gagnvart Davíð Oddssyni

Í stjórnartíð Geirs og Ingibjargar, margítrekaði Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri, aðvörunarorð sín um stöðu bankanna. Hatrið á Davíð frá vinstri vængnum gerði það að verkum að ekki var hlustað á aðvörunarorðin.... af því hann sagði þau.

Geir Haarde þorði ekki að rugga bátnum í hinu eldfima stjórnarstarfi... hann vildi ekki styggja vinstrimenn. Það voru alvarlegustu mistök Geirs sem forsætisráðherra.

liljamóLilja Mósesdóttir segir: "...mér finnst oft sem að mál sem ég hef haldið á lofti hafi liðið fyrir að það var ég sem lagði þau fram og talaði fyrir þeim."

Hið rétta eðli forystumanna vinstrisinnaðs fólks á Íslandi hefur berlega komið í ljós. Þetta kemur mér ekki á óvart, enda orðinn fimmtugur og man tímana tvenna. Það er skiljanlegt að yngri kjósendur hafi ekki áttað sig.

Vonandi gera þeir það núna.


mbl.is Lilja: „Var vöruð við rætni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Gunnar! Þakka þér fyrir að minna lesendur á bloggsíðu Ásthildar,hvað Sigmundur Ernir og Vg. höfðu um mál Lilju Móses að segja. Ég tók fljótlega eftir hve Lilja var laus við fordóma,fór inn í Valhöll þar sem hún átti erindi,með "vinnufélögum",nokkuð sem aðrir á vinstri væng hefðu trauðla gert. Gleðileg Jól!

Helga Kristjánsdóttir, 23.12.2010 kl. 16:05

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þó ég sé ekki sömu megin og hún í pólitík, þá er hún aðdáunarverður persónuleiki og aðrir þingmenn mættu taka hana sér til fyrirmyndar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.12.2010 kl. 16:28

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Vel mælt.

Baldur Hermannsson, 24.12.2010 kl. 00:12

4 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Hvort, sem Lilja Mósesdóttir skiptir um flokk, eða hún stofnar nýjan flokk, mun hún taka með sér fólk úr öðrum flokkum og þá einkum frá Vg ? SJS hefur sýnt svo eftirminnilega, að hann krefst algjörrar hlýðni í sínu liði, ella valtrar hann yfir það ! Hugsanlega er bara spurning um tíma, hvenær hreinsanir í Vg hefjast ?

Kv.,KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 26.12.2010 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband