Sigmundur Ernir: "Sprikl á kostnað okkar hinna"

Ég var að horfa "Svartar tungur"sem er spjallþáttur þremenninganna Sigmundar Ernis Rúnarsson, Birkis Jóns Jónssonar og Tryggva Þórs Herbertssonar, á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Gestur þeirra var Steingrímur J. Sigfússon. Ég náði bara byrjuninni á þættinum og á eftir að kíkja betur á hann síðar. 

Uppreisnarseggirnir þrír í VG (villikettirnir), bárust að sjálfsögðu í tal. Þá sagði Sigmundur að "þetta sprikl þeirra væri á kostnað okkar hinna í ríkisstjórninni".

Þetta er með makalausari yfirlýsingum sem ég hef heyrt frá stjórnmálamanni. Það hlýtur að vera martröð að vinna með þessu fólki. 

"Bunker mentality"....gúglið það.

Ég fór og kíkti á hina frægu fylleríisræðu Sigmundar á Alþingi. Ég hafð bara séð partinn "á ögabraði".Ég vissi ekki að þessi hörmung stóð yfir í heilar 21 mínútu. Ræðan er öll á youtube, í þremur pörtum.


mbl.is Óhætt að trúa fréttinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband