Hér er myndbandið

nurse-460_1746075cÞetta er skelfilegt atvik og greinilegt að "hjúkrunarfræðingurinn"  (sem ég efast um að þessi asíska kona hafi leyfi til að kalla sig) veit ekkert hvað hún er að gera.

Myndbandið af atvikinu má sjá HÉR , ásamt fréttaskýringu.

Eflaust tengja margir þetta atvik einkavæðingu heilbrigðisgeirans, að þarna sé verið að ráða réttindalausa eða litla fagaðila, sem hægt er að greiða mun lægri laun.

En auðvitað þarf þetta ekkert að vera svoleiðis. Í þessu breska tilviki, verður vinnuveitandi þessarar hjúkrunarkonu-ónefnu, væntanlega rannsakaður fyrir refsiverða háttsemi og viðurlög eiga auðvitað að vera í samræmi við alvarleika afleiðinganna. Ég tel ekki að hjúkrunarkonan eigi að fá neina refsingu.... nema e.t.v. að vera lækkuð í tign og sett í önnur störf við hæfi.

 Allir vita að ríkisreknu spítalarnir eru ekki lausir við mistök og handvömm og það verður sennilega aldrei hægt að koma algjörlega í veg fyrir slíkt. Þó ég sé fylgjandi því að einkarekstur heilbrigðisstofnana sé skoðaður, þýðir það ekki að ég trúi á slíkt í blindni. En ég vil hins vegar að það sé skoðað með opnum huga, en ekki slegið út af borðinu, eins og margir harðir vinstrimenn vilja gera.


mbl.is Slökkti óvart á öndunarvél sjúklings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað er að þér maður að telja að hjúkrunarkonan eigi að halda áfram starfi? Þarna var maður í erfiðum aðstæðum en þó fullvita. Hvað er hann nú?

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.10.2010 kl. 14:15

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei, Sigurður, ég segi einmitt að hún eigi að færast til í starfi, en eigi ekki að fá aðra refsingu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.10.2010 kl. 14:27

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sorglegt.

Sigurður Haraldsson, 25.10.2010 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband