Mannlegur harmleikur

Máltækið segir: "Margur verður af aurum api" en peningar gera fólki svo miklu verri grikk en það. Sumt fólk er ekki "köttað út" fyrir að eiga mikla peninga eða umgangast þá mikið. Það hefur ekki karakter í það, ... þegar til lengri tíma er litið Errm

Í gegnum viðtöl í fjölmiðlum við Jón Ásgeir og umfjallanir um hann, fær maður einhverja innsýn inn í persónuleika hans. Af einhverjum ókunnum ástæðum hef ég samúð með Jóni Ásgeiri en ekki með föður hans, "Papa Bónus". Sá gamli er útsmoginn refur sem kallar ekki allt ömmu sína. Sonurinn hefur lært samviskusamlega af föður sínum en er ólíkur honum á einu sviði. Syninum er ekki eðlislægt að vera forhertur. Forhersla hans er lærð, á meðan faðirinn er einfaldlega þessi manngerð.

Jón Ásgeir virkar á mig tilfinninganæmari en faðir sinn. Hann hefur í gegnum tíðina reynt að fela tilfinningahlið sína fyrir öðrum með töffaraskap en það er merki um óöryggi. Slíkt geð telst sennilega veikleikamerki í hörðum heimi viðskipta. En hegðan sonarins í félagi við föður sinn í viðskiptalífinu, er auðvitað kveikjan að nafngift Davíðs Oddssonar á drengnum, en það var eins og margir muna: "Götustrákur" og fékk Davíð bágt fyrir frá Samfylkingunni.

En hvað um það.... ég skynja mannlegan harmleik og sorg í þessu máli. Systkini berast á banaspjótum... og allt út af hverju? Jú, ... peningum.


mbl.is Systkinin ósammála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Það kann að vera margt til í þessu sem þú segir nafni en ég hef á tilfinningunni að þetta sé bara partur af leikriti.

Eins og þú veist þá einfaldar þessi uppákoma ekki málið heldur þvert á móti. Nú hefur Jón tekið stjornina á þessu máli og stýrir því í nýjan farveg og á meðan tikka fyrningarfrestir.

Jón hefur mér vitanlega ekki sakað systur sína um lögbrot heldur mistök.

Landfari, 20.7.2010 kl. 11:11

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

þú ert ekki fyrsti maðurinn til að láta blekkjast af persónutöfrum sækópatans. Jón Ásgeir er arkitekt hrunsins og aðalgerandi. Flestir aðrir voru í skjóli hans. Eins og pabbi hans og systir. Hvenær ætlar fólk að taka Davíð Oddson útúr jöfnunni og reikna dæmið  rétt?  Steinunn Guðbjartsdóttir er að gera það

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 20.7.2010 kl. 13:13

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er ekki að láta blekkjast neitt, Jóhannes. Hefurðu aldrei horft á bíómynd og haldið með bófanum?

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.7.2010 kl. 19:52

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

.... en Jóhannes, ertu hörundssár fyrir hönd Samfylkingarinnar?

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.7.2010 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband