Loksins búinn að ná þessu

golfKylfingurinn Björgvin Þorsteinsson er greinilega búinn að ná þessu í eitt skipti fyrir öll. Fer holu í höggi tvo daga í röð! Hann getur nú snúið sér að öðru. Joyful 

Læt fylgja með einn golfbrandara:

Fjórir vel stæðir eldri menn, spiluðu gjarnan golf saman, en þeir áttu allir ágætis hús á Flórída. Einn þeirra segir upp úr eins manns hljóði úti á golfvellinum:

"Hugsið ykkur hvað það væri yndislegt að vakna á jóladagsmorgunn, velta sér fram úr rúminu án nokkurra andmæla, fara beint út á golfvöll til félaga sinna og taka hring".

Félögum hans fannst þetta stórsnjöll hugmynd. "Gerum þetta!", sögðu þeir nánast allir í kór.

"Þetta verður forgangsatriði þessi jól, finnið út leið til þess að geta verið mættir hér snemma á jóladagsmorgunn", sagði sá sem átti uppástunguna. 

Nokkrum vikum síðar rennur upp fyrirheitni dagurinn, bjartur og fagur að venju í sólskinsríkinu og þeir eru allir fjórir mættir á golfvöllinn.

Sá fyrsti segir: "Ó boy, þessi golfhringur er að kosta mig heila formúgu. Ég keypti handa frúnni þvílíkan demantshring, að hún getur ekki haft augun af honum.

Þá segir annar karl: "Þetta kostaði mig líka alveg helling. Konan er heima núna að plana siglingu sem ég gaf henni. Hún er að drukkna í bæklingum um karabíska hafið".

Sá þriðji segir: Já, mín kona er heima að dást að nýja bílnum sínum og að lesa bæklinga um hann.

Þeir snúa sér nú allir að fjórða gaurnum sem horfir á þá vorkunnar augum: "Ég trúi því ekki að þið séuð að eyða svona miklu fé í þetta! Ég bara vaknaði í morgunn, sló konuna létt á rassinn og sagði "Góðan daginn elskan mín og gleðileg jól.  Þetta er frábær dagur fyrir annaðhvort kynlíf eða golf.

Konan syfjulega: "Taktu peysu".


mbl.is Björgvin fór holu í höggi tvo daga í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband