Stórkostleg myndbönd

"Maður einn heitir Martin Rietze.  Hann hefur tekið frábærar ljósmyndir af eldgosum víðs vegar um heim. Myndir hans af gosinu í Eyjafjallajökli árið 2010 eru ekki aðeins merkileg listaverk, heldur einnig mjög góðar heimildir.  Það er ekki ljóst hvernig Martin hefur náð slíkum myndum, þegar tekið er tillit til þess að svæðið er lokað.  Sögusagnir ganga um það að hann hafi gengið á jökulinn frá Stóru Mörk, upp Skerin og að Goðasteini til að ná þessum myndum, en það er milli 6 til 10 km, hvora leið.   Gangan hefur verið vel þess virði, eins og sjá má af myndum hans, HÉR 

Martin er orðin goðsögn meðal ljósmyndara um heim allan og þeirra, sem þrá  frekari upplýsingar um gosið í Eyjafjallajökli, eins og það sést í návígi. En nú þegar ég hef uppljóstrað þessu, þá bíða Almannavarnir hans sjálfsagt næst þegar henn fer um Keflavíkurflugvöll, eða hvað?"  (Af bloggi Haralds Sigurðssonar  , eldfjallafræðings)

Á síðunni sem vísað er í, má finna mörg stórkostleg myndbönd af þessum náttúruhamförum, m.a. þetta hér að ofan.


mbl.is Gosmökkur hefur minnkað mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband