Talar hann of mikið?

Það hefur ekki þótt vænlegt til vinsælda hjá stjórum liða, þegar starfsmenn á plani eru að tjá sig mikið um leikstíl, þjálfunaraðferðir, kaup og sölur á leikmönnum o.s.f.v.

rafa_benitez_1558960cAllt sem við kemur stjórnun liðsins, kemur leikmönnum ekki við og allra síst eiga þeir að fara með hugleiðingar sínar í fjölmiðla. Þetta er liður í því að halda "húsaga".

Ég held að staða Benites sé afar veik og ummæli Torres sé vottur um að það styttist í annan endan á veru þjálfarans á Anfield. Stuðningsmönnum hans fækkar óðum og sennilega vill meirihluti "Púlara" að hann yfirgefi svæðið. Þeir eru búnir að fá nóg.

jose-mourinho_1_Ps. Er ekki Jose Morhino búinn að gefa það í skyn að hann sé hálfpartinn á lausu? Hann hefur áhuga á að snúa aftur til Englands. Hann fær mín bestu meðmæli Cool


mbl.is Torres: Sölurnar síðasta sumar skemmdu liðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur H Gunnlaugsson

Gunnar, held ad Torres sé thad gódur leikmadur ad hann geti tjád sig ad vild????? Allavegana UTD. studari eins og ég veit ekki HVAR lidid vaeri hefdu their ekki naelt í thennan magnada framherja. Torres er einn af 4 bestu í Evrópu ad mínu mati ;))

Gunnlaugur H Gunnlaugsson, 7.4.2010 kl. 12:06

2 identicon

Algjörlega sammála Torres. Annaðhvort eru Benites og eigendur liðsins galnir eða einfaldlega ekki starfi sínu vaxnir. Alosno hafði aðlagast enska boltanum snilldarlega og tók að hluta til ábyrgð af Gerrard af miðjunni. Það þarf alltaf öfluga leikmenn aftarlega á miðjunni, eitthvað sem liðið hefur ekki í dag. Um mikilvægi Hyppia þarf ekki að tala og skil ég ekki af hverju hann var látinn fara. Hann er talinn einn af fimm bestu leikmönnum í þýsku úrvalsdeildinni nú í vetur og besti varnarmaðurinn. Agger og Skrtel hafa ekki náð að fylla hans skarð, enda alltaf meiddir. Benites lét því tvo af fjórum bestu fara fyrir tímabilið svo við hverju var að búast. Liðið er á pari miðað við mínar væntingar í vetur, tekur eina dollu í vor.

Hjalti (IP-tala skráð) 7.4.2010 kl. 12:09

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála með gæði Torres, en það er aldrei gott fyrir liðsandann ef einn er alltaf að gjamma og væla í fjölmiðla með sýnar einkaskoðanir.

Ég held að slíkt gangi ekki upp.

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.4.2010 kl. 12:20

4 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Maður er löngu búinn að fá nóg af endalausum afsökunum senjorsins og hinu miður heppnaða skiptikerfi sem fyrirliðanum ofbauð í leiknum á móti Birmingham. Fyrr mun frjósa í helvíti en núverandi eigendur hafi vit eða efni á Portú-galanum þótt það sé skemmtileg tilhugsun.

Guðmundur St Ragnarsson, 7.4.2010 kl. 17:17

5 identicon

Spurning hvort það sé gott fyrir netheima að Th punktur Gunnararsson sé að slá inn athugasemdir daginn út og inn.

Ekki það að hann sé verri verkmaður en aðrir, nema síður væri. Heldur vegna þess að hann hefur ekkert úthald - ekkert úthald.

Krímer (IP-tala skráð) 7.4.2010 kl. 23:23

6 identicon

Ég vona svo sannarlega að eitthvað annað sé í spilunum en en sá ágæti maður José Mourinho. Helst myndi maður vilja gallharðann Liverpool mann eins og t.d. Ian Rush eða einhvern af hans kaliberi. Ég held það sé líka í lagi að Bretarnir stjórni liðum á Englandi. Maður veit hvernig afstaða sumra erlendra stjóra á Englandi er t.d. Wengers sem vill helst ekki hafa Englendinga í sínu liði.

Hjalti (IP-tala skráð) 8.4.2010 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband