Smartís kynslóðin

Á fyrrihluta níunda áratugarins varð mikil aukning í barneignum á Eskifirði og nágrenni. Menn veltu því fyrir sér hvernig stæði á þessu og eftir miklar bollaleggingar, rifjaðist það upp hjá mörgum að Auðbergur læknir á Eskifirði, ávísaði nýrri gerð getnaðarvarnapilla um þetta leyti.

Gárungarnir sögðu að Auðbergur væri að gera tilraunir með nýju pilluna og honum þætti e.t.v. ekki alslæmt ef svo færi að hún virkaði ekki sem skyldi. Fólki hafði nefnilega farið fækkandi á Eskifirði og það var náttúrulega ótækur andskoti.

Hinir stóru árgangar sem fæddust laust eftir 1980 á Eskifirði, hafa alla tíð síðan verið kallaðir "Smartís árgangarnir".

condom-sponsors


mbl.is Nýtt getnaðarvarnarlyf fyrir karla hugsanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sælir

rúllaði þér upp að vanda varðandi EM

En varðandi fjölgun mannkyns á þínum slóðum þá hef ég alltaf haft talsverðar áhyggjur af því þegar sami ættliður fjölgar sér grimmt innan frá og virðist lítið um innkomu utanaðkomandi nema þá í þínu dæmi. Eru þetta ekki meira og minna bara 2-3 fjölskyldur þarna og flestir að djöflast á frænku sinni eða frænda sem endar svo með börnum og hjónabandi. Þetta er ferlegt að leyfa þetta og Hannes læknir farin líka.

Blöndun er góð og oft nauðsyn.

b.kv. Arnar

Arnar (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 12:23

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sé fyrir mér Toyota-merkið, T-ið þar sem textinn er á blöndu af íslensku og ensku:

Toy-til að-ota.

Ómar Ragnarsson, 7.2.2010 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband