Færsluflokkur: Fjölmiðlar
Á vefmiðli New York Times eru borgarbúar spurðir hvernig þeir haldi að nafnið á hinu öskuspúandi eldfjalli sé borið fram. Hér má heyra þessa snilld:
City Room: Iceland Volcano Spews Consonants and Vowels
Í textanum í greininni má lesa lýsingu á því hvernig réttur framburður er:
The EY rhymes with the word bay. The k is softer than an English k, almost like a hard g. And the t at the end kind of sticks for a second and pulls away.
EY-ya-fyat-lah-YOH-kuht
Say it soft and its almost like, Hey, ya fergot La Yogurt.
Þessi flotta mynd fylgir einnig greininni
Gígarnir hafa stækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 16.4.2010 (breytt kl. 22:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
33 sækja um fjölmiðlafulltrúastarf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 26.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afhverju GOAL? Ég er enginn íslensku-fanatík... en enskt nafn á íslensku tímariti finnst mér bjánalegt.
MARK! hefði verið skárra.... eða TUÐRAN
Nýtt tímarit um fótbolta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 18.3.2010 (breytt kl. 13:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta er svo fáránlega illa skrifuð frétt að það er vart hægt að skilja hana.
"Andstæðingar" í nánast hverri málsgrein
Ætli Google skilji þetta?
Trúnaðarbrestur í Icesave-samningum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 3.3.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
John Stewart, http://www.thedailyshow.com/ gerði skemmtilega grín að því um daginn að bandarískir skattgreiðendur afhentu Goldman Sachs Group álíka upphæð til að "bjarga" bankanum og er að skila sér í hagnaði í ár, eða 1.700 miljarða íslenskra króna.
Og nú streyma bónusgreiðslur til stjórnenda bankans sem aldrei fyrr.
Mikill hagnaður Goldman Sachs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 21.1.2010 (breytt kl. 16:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef RÚV tekur það fram á vefmiðlum sínum að lögin séu einungis til heimilis og einkanota, þá getur ekki einu sinni sprenglærður stjörnulögfræðingur haggað því. Ríkisfjölmiðillinn hefur einkaleyfi á þessu þar til aðrir samningar taka gildi.
Ég hélt að þetta væri ekkert flókið.
Kaninn og RÚV í hár saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 21.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tæplega tvöþúsund manns hafa aðgang að fésbókarsíðu Hrannars B. Arnarssonar, aðstoðarmanns forsætisráðherra. Þar á hann létt elhúskaffispjall við "vini" sína. Hann setur þar fram hugleiðingar sem ekki eru til opinberrarrar birtingar. Hugleiðingarnar eru trúnaðarmál, enda maðurinn í ábyrgri stöðu í þjóðfélaginu.
Margir eru þeirrar skoðunnar að Jóhönnu Sigurðardóttir veiti ekki af góðri aðstoð í starfi sínu, þar sem hún er bæði blind og mállaus.
Fésbókarsíðan ekki opinber | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 13.1.2010 (breytt kl. 12:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég "gúgglaði" upp nokkra erlenda fréttamiðla, örfáum mínútum eftir yfirlýsingu forsetans. Svo virðist sem útlendingar taki þessum atburði þannig að Íslendingar ætli ekki að borga skuldir sínar í Bretlandi og Hollandi. Enn ein vísbending um að stjórnvöld hafa ekki staðið sig í að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Forsíða Verdens gang í Noregi
ABC-news
Sky News...."Ísland neitar að borga"
Mér skilst að ríkisstjórnin hafi ráðið breskan almannatengil til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Vinnubrögðin hljóta að teljast ámælisverð, í ljósi þess að helstu fréttastofur heims fara með fleipur um hvað sé að gerast á Íslandi.
Fréttin barst hratt út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 5.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hún er skondin þessi frétt um indverska manninn sem tók sér hamar og meitil í hönd og hjó göng í gegnum fjall við húsið sitt og var heil 14 ár að ljúka verkinu. Göngin gerði maðurinn svo hann fengi bílskúr. Ekki nóg með það heldur fögnuðu þorpsbúar göngunum einnig, því nú spara þeir langa leið fyrir fjallið.
Einkennilegt að þorpsbúarnir skuli ekki hafa hjálpað manninum, úr því göngin muna þá svona miklu. Eins finnst mér merkilegt að ekki skuli fylgja fréttinni mynd af þessu magnaða mannvirki. Ég prófaði að "gúggla" nafn Indverjans og fékk nokkrar fréttasíður um þennan merka atburð, en engin þeirra er með mynd.
Kannski er þetta bara plat og fréttastofur hafi gleypt við því. Skemmtileg frétt.
Þarna hefur einhver gert göng inn í bílskúr
Hjó göng til að geta lagt bílnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 2.12.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Dýravernd er göfug hugsjón, alveg eins og umhverfisvernd. Öfgafólk úr röðum dýra- og umhverfisverndarsinna, skaða þó oftar en ekki málstaðinn.
Um daginn var umdeildur þáttur um minnkaeldi sýndur í danska sjónvarpinu. Þar var til umfjöllunar meint ill meðferð á dýrunum. Var farið með falda myndavél inn á minkabú og sýndar hroðalegar aðstæður dýranna.
Þátturinn hefur vakið umtal og er talið líklegt að hann munu valda breytingum á lögum og reglugerðum sem lúta að minkabúum. Í þættinum voru sýndir minkar í minkabúrum og þjást þeir augsjáanlega af sýkingum, hafa opin sár og eru beinbrotnir. Myndirnar eru teknar með falinni myndavél sem dýraverndunarhópurinn Anima náði
Ég hef ekki séð þennan þátt en ég fordæmi illa meðferð á dýrum. Ég kannast hins vegar við aðferðir svona öfgahópa og þau áhrif sem þær valda. Er það sem fram kemur í myndinni rétt? Samtök minkaræktenda í Danmörku segja að svo sé ekki.
Dan Jörgensen sem situr á Evrópuþinginu vill vill láta banna minkaeldi gersamlega á danskri jörð, líkt og er þegar tilfellið í Stóra Bretlandi og Austurríki. Tillaga um minkaeldisbann á örugglega eftir að koma fram innan ESB.
Ísland verði minkaland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 3.11.2009 (breytt kl. 23:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Viðskipti
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
- Óttast að fólk fari aftur að eyða peningum
- Innherji: Frekari uppsagnir en nú tveir forstjórar
- Eigið fé er dýrasta fjármögnunin
- Skoða skráningu á Norðurlöndum