Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
Viðskipti og fjármál | 29.9.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hefur ekki Geir Haarde verið að segja undanfarið að staða íslensku bankanna sé sterk og engin hætta á að þeir rúlli yfir?
Jæja, nú er búið að redda Glitni, er þá ekki tími til að fagna... efna til veislu og bjóða Elton John eða einhverjum flottum til að spila dinnermúsik yfir svignandi veisluborðum.
![]() |
Glitnir hefði farið í þrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 29.9.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Yfirmenn hinna opinberu starfsmanna Innanrískisráðuneytis USA sem neyttu eiturlyfja, þáðu mútur og notfærðu sér þjónustu vændiskvenna í boði einkaaðila, líta á slíka háttsemi alvarlegum augum.
Voðalega eru þeir eitthvað þröngsýnir. Skilja þeir ekki að þetta eru bara opinberir starfsmenn á skítalaunum. Þeim væri nær að borga þeim mannsæmandi laun!
Þó þeir fái nú aðeins að njóta lífsins greyin!
![]() |
Kynlíf, eiturlyf og olíuleit allt í sama pakkanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 11.9.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Margur gengur með þann draum í maganum að verða ríkur á hlutabréfabraski og margur fer flatt á því. Ef það væri svona einfalt að verða ríkur, þá værum það sennilega fleiri en raunin er.
Auðvitað eru sumir naskir á að kaupa og selja á réttum tíma og eru vakandi og sofandi yfir breytingum á mörkuðum. Einhver orðaði þetta á einfaldan hátt: "Buy low, sell high". Bubbi þarf ekkert að örvænta, hans tími mun koma.
Kínverjar eru frægir fyrir sína heimspekilegu ró og þolinmæði. Þeir segja; "Trén vaxa meðan mennirnir sofa".
![]() |
Allur sparnaðurinn fór |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 9.8.2008 (breytt kl. 18:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef ekki séð íslenska bankavefsíður bjóða upp á svona gjaldeyris umbreytir, (currency converter) þar sem hægt er að umreikna hvaða gjaldeyri sem er.
HÉR er síða sem hægt er að umreikna yfir 150 tegundir gjaldeyris.
Viðskipti og fjármál | 1.5.2008 (breytt kl. 17:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég dreg stórlega í efa að sú hryna verðhækkana undanfarið á matvörum, eða svo sem hverju sem er, eigi sér alltaf eðlilegar skýringar.
Þegar Krónan hóf rekstur hér á Reyðarfirði, þá fannst mörgum hér á fjörðunum þeir hafi himinn höndum tekið. Bónus var fyrsta lágvöruverslunin sem kom sér fyrir á Austurlandi (Egilsstöðum) og fólk neðan af fjörðunum fór uppeftir til að versla, því verðmunurinn var það mikill að það var fljótt að borga upp bensínkostnaðinn. En svo kom Krónan á Reyðarfjörð fyrir um 2 árum.
Kasko reyndi að halda áfram rekstri í gamla Kaupfélagshúsinu en gafst svo upp. Vöruúrval var með ágætum til að byrja með en svo hefur það farið hríðversnandi og nú er svo komið að fólk er farið að koma við í Bónus á Egilsstöðum á ný, vegna þess að þar er mun meira vöruúrval.
Mig rak í rogastanz fyrir helgina þegar ég ætlaði að kaupa uppáhalds morgunkorn sonar míns, sem er Havre fras (koddar). Verðið á litlum pakka var um 350 kr. fyrir stuttu síðan en nú kostaði hann 630 kr. ! Þegar ég spurði afgreiðslustúlkuna hvort þetta væri ekki einhver vitleysa, svaraði hún hálf skömmustulega að því miður hefði þetta bara hækkað svona. Þegar ég hafði huggað hana og sagt henni að þetta var ekki henni að kenna, fór ég með pakkann aftur í hilluna og skilaði honum.
Ég læt ekki bjóða mér svona svívirðu.
![]() |
Allir fylgist með |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 28.4.2008 (breytt kl. 18:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hinn móralski stuðningur sem Richard Portis, prófessor við London School of Economics, veitir íslensku efnahagslífi og bönkunum í þessu viðtali, er hugsanlega eitt verðmætasta innlegg um Ísland í bandarísku/alþjóðlegu sjónvarpi frá upphafi. Spurnig hvort ekki ætti að vera mynd af Porter á nýja 100 þús. kr. seðlinum. Fer hann ekki annars að koma fljótlega?
![]() |
Segir Ísland afar vel rekið land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 26.3.2008 (breytt kl. 16:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 3
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 946852
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Vopnahlé fyrir Úkraínu
- Páskasælgætið
- Gleðilega páska
- Grímur Thomsen var "villt og undarleg vera" - Eins konar ritdómur
- Páskar
- ,,Styrkur trúarinnar er fólginn í veikleika hennar"
- Hús dagsins: Minjasafnskirkjan (Aðalstræti 56)
- Hnattvæðingin er á enda
- 48% grunar að Covid faraldurinn sé ásetnings gjörningur
- Gleðilega páska á flekamótum