Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Steingrímur hefur ekkert í þetta mál að gera. Hann segir bara hvað forsetinn var vondur við hann.... hvað allir séu vondir við hann á Íslandi. Svo grætur hann smávegis á öxlinni á fjármálaráðherra Bretlands og segir "Oh Darling".
Gamla Alþýðubandalagið sem öllu ræður í ríkisstjórn landsins, hefur opinberað dugleysi sitt þrisvar sinnum í þessu máli.
Er ekki komið nóg?
![]() |
Steingrímur til Bretlands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 6.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þeir eru ófáir "Quislingarnir", bæði erlendis og hérlendis.
Það er fáheyrt að ráðamenn þjóða taki málstað andstæðinga sinna í deilum. Það hafa ráðamenn íslensku þjóðarinnar ítrekað gert á undanförnum mánuðum.
Samningaleiðin er orðin ófær. Eina leiðin út úr þessu héðan af er dómstólaleiðin.
![]() |
Ábyrgðarleysi hjá forsetanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 6.1.2010 (breytt kl. 01:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í geðshræringu hádegisins, héldu foreldrar þessarar óstjórnar okkar, blaðamannafund. Það var augljóst að þau voru bæði í andlegu ójafnvægi og yfirlýsingar þeirra á fundinum báru þess merki. Skaðinn var mun meiri af orðum þeirra en af gjörðum forsetans.
Erlendu blaðamennirnir voru ekki í vandræðum með fyrirsagnir sínar í kjölfarið. Þeir þurftu ekki einu sinni að hugsa þær sjálfir.... þær komu "gratis", frá forystumönnum ríkisstjórnarinnar. Það er sjálfsagt ekki á hverjum degi sem þeir komast í svona "Headline material", eins og þau skötuhjúin.
![]() |
Sammála um að lágmarka ókyrrð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 6.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Það var stofnuð Facebook síða fyrir fólk sem vill að Ólafur Ragnar segi af sér. Karl greyið var hálf klökkur þegar hann hélt blaðamannafundinn í morgun. Það lá við að ég vorkenndi honum.
Ég mæli með að fólk skrái sig á þessa: http://www.facebook.com/group.php?gid=236510959775&ref=nf&v=info
![]() |
Bretar leita til ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 5.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og frændur okkar á Norðurlöndum eru nýbúnir að sverja af sér að lánveitingarnar þeirra tengist afgreiðslu á Icesave.
Héldu þessir aðilar að við tækjum ekki eftir lyginni?
![]() |
Lánafyrirgreiðsla Svía veltur á AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 5.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hvað hefur ríkisstjórnin gert til að koma sjónarmiðum þjóðarinnar á framfæri? Auðvitað ekki neitt, því hún gerði engan samning við Breta og Hollendinga, heldur samþykkti það sem að henni var rétt, með von um hraðferð inn í ESB.
Erlendir fölmiðlar eru uppfullir af sömu vitleysunni, sjá HÉR
![]() |
Ákvörðun Íslands hneyksli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 5.1.2010 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sumir vilja bera saman þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál og þjóðaratkvæðagreiðslu um skattamál og fjárlög, en sá samanburður er út í hött. Icesave-málið er deila um lagatúlkun, ólíkt skattamálum, og um það deila lögspekingar. Þegar þetta álitamál hefur verið kynnt þjóðinni á mannamáli, þá er almenningur fullfær um að taka afstöðu til málsins.
Þeir sem vilja festa í lög þennan skammarlega lélega samning, reyna að hræða þjóðina með því að segja að einhverjar auka-hörmungar dynji yfir ef hann verði ekki samþykktur. Þessu er slegið fram í áróðursskyni án þess að færð séu rök fyrir því.
Ég hef haldið því fram nokkrum sinnum hér á blogginu að Ólafur Ragnar muni örugglega skrifa undir lögin, en miðað við ávarpið í gærkvöldi, þá kviknaði smá von um að hann geri það ekki.
![]() |
Vilji þjóðarinnar hornsteinninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 1.1.2010 (breytt kl. 17:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skúrkurinn á Bessastöðum er að "kæla" málið og skrifar svo undir lögin 4. janúar. Steingrímur Joð mun segja af sér ráðherra og þingmennsku, geri hann það ekki.
Það veit Bessastaðamaðurinn.
![]() |
Forseti tekur sér frest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 31.12.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Það er í raun sorglegt að mál af þessu tagi skuli afgreitt eftir flokkspólitískum línum.
Ég fullyrði að umtalsverður hluti stjórnarþingmanna hafi ekki kosið eftir eigin sannfæringu í málinu sjálfu, heldur vegna annarra hagsmuna.
Samfylkingarþingmenn eru dregnir áfram af þeirri sannfæringu að samþykkt ríkisábyrgðarinnar liðki fyrir og auki líkur á hraðferð inn í Evrópusambandið og V-grænir af ótta við að áratuga draumur um hreina vinstristjórn renni út í sandinn.
Ef þessi vinstristjórn liðast í sundur, þá verður það verkefni annara kynslóða en okkar, að leiða saman vinstrimenn að nýju. Steingrímur Joð gerir sér fulla grein fyrir þessu.
Ef bjáninn á Bessastöðum skrifar undir þessi lög... tja, hvað gerist þá?
P.s. Ég held að Ögmundur hafi sagt nei eftir að hafa fullvissað sig um að atkvæði hans skipti ekki sköpum og að frumvarpið færi í gegn. Öðru máli gegnir um Lilju Mó, ég hef meira álit á henni.
![]() |
Alþingi samþykkti Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 30.12.2009 (breytt 31.12.2009 kl. 00:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Dagpeningar sem landkrabbar fá fyrir störf fjarri heimili sínu, eru til að dekka kostnað við mat og gistingu. Ekki þurfa sjómenn að borga gistingu, en ef ég man rétt þá borga sjómenn einhvern hlut í matarkostnaði, a.m.k. hlut af olíu og umbúðakostnaði. Þær álögur finnst mér reyndar ósanngjarnar, svona svipað og að láta starfsfólk spítala, skóla eða banka borga rafmagnsreikninga vinnuveitanda síns.
En einu virðast margir gleyma varðandi sjómenn, en það er að þeir eru ekki að njóta opinberrar þjónustu líkt og aðrir launamenn, nema að takmörkuðu leiti. Þeir hafa hreinlega ekki aðgang að henni. Einhverntíma heyrði ég mann segja að kostnaður vegna björgunarþyrlna Landhelgisgæslunnar væri vegna sjómanna, en það er tóm vitleysa. Meirihluti útkalla þyrla LHG er á landi.
Það þarf að finna sanngjarna lausn á þessu máli fyrir sjómenn. Spurning að tekjutengja sjómannaafsláttinn.
![]() |
Sjómenn fái dagpeninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 29.12.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.7.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Þórður kakali Herforinginn sem sigraði Ísland
- Af hverju hlustum við ekki á Luai Ahmed?
- Lífmerki í eyrnamerg greina krabbamein, sykursýki og fleiri sjúkdóma
- Hvað fá nornirar borgað fyrir að gefa ESB miðin?
- Fyrri hluti júlímánaðar 2025
- Skattheimtumenn við borgarmúrana
- Þingmenn voru upplýstir um nýtt regluverk WHO í nóvember 2023
- Siðlausar siðvenjur Vesturlanda !
- Stórútgerðir eflast
- Auðsholt í Ölfusi og Auðsholt í Hrunamannahreppi.