Hvað segir öfgaliðið nú?

GreenTeam Þær upplýsingar sem koma fram í viðtengdri frétt, stangast algjörlega á við fullyrðingar umhverfisverndarsinna, sem allt vilja friða og ekkert virkja.
mbl.is Raforkusalan stendur undir kostnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítið

Þetta er mjög sérkennileg yfirlýsing hjá framkvæmdastjóra Austfars, að "ekki hafi orðið var við aukningu á bókunum ennþá".

Frá Grunnskóla Reyðarfjarðar eru nú 42 nemendur úr þremur elstu bekkjunum í heimsókn í Esbjerg, ásamt fimm fylgdarmönnum. Þegar óljóst varð um flug heim frá Kaupmannahöfn á sunnudaginn, var ákveðið að athuga með heimferð með Norrænu, en hún siglir einmitt frá Esbjerg.

Um 300 miðar voru lausir með ferjunni á hádegi í gær en örfáum klukkustundum síðar voru einungis 100 miðar eftir. Ákveðið að taka ekki sénsinn með krakkana og því var stokkið á það að kaupa miða.

Ekki var hægt að skilja málið öðruvísi en að miðarnir rykju út og því þurftu skólayfirvöld hér að taka ákvörðun strax. Þægilegra hefði verið að geta beðið til föstudags með þessa ákvörðun.

Sumir krakkanna voru ekki par ánægðir með að stytta ferðina um einn dag, því mikið stóð til á laugardaginn, með fjölskyldunum sem þau gistu hjá. M.a. átti að fara í     "Go-kart" Undecided og ýmislegt fleira húllumhæ.

Ps. Skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar talaði við framkvæmdastjóra Austfars kl 10.30 í morgun og þá voru örfáir miðar eftir.


mbl.is Óbreytt áætlun hjá Norrænu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fegurð

fegurð

Ég sá þessa mynd á bloggi Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings. Svo setti einhver hana inn á facebook og eitthvað hefur verið átt við litina í mynvinnsluforriti.

Glæsilegt engu að síður


mbl.is Vont fyrir heilsuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra en ráðherraafsögnin

Þessi afsögn er trúverðugri en þegar hann sagði af sér ráðherraembætti í fyrri ríkisstjórn, þegar hann vissi að stjórnin var í andaslitrunum.

Hvort sem hann sagði af sér vegna utanaðkomandi þrýstings eða ekki. þá er þetta ágætt hjá honum.

Ég hef verið stuðningsmaður Þorgerðar Katrínar undanfarin ár. Hún á að fara að fordæmi Björgvins.


mbl.is Björgvin víkur af þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyðarfjarðarkrakkar strandaglópar?

8., 9. og 10. bekkir í Grunnskóla Reyðarfjarðar, samtals 42 börn og 5 fylgdarmenn eru nú í Esbjerg í Danmörku að endurgjalda skólaheimsókn jafnaldra sinna til Reyðarfjarðar. Þetta er vikuferð og áætluð heimkoma er á sunnudaginn.

Nú ríkir að sjálfsögðu óvissa um heimkomuna en möguleiki er á að flýta henni með því að taka Norrænu á laugardaginn. En þar sem flugfélög á Íslandi fela sig á bak við það að þau taki ekki ábyrgð á náttúruhamförum, þá efast ég um að flugið heim (ef það fellur niður á sunnudaginn), fáist endurgreitt.

Ég var eitt sinn strandaglópur í Chicago, USA, vegna vetrarstorms í Mið og Vesturríkjunum. Ég var á leið til Seattle. Allt hótelrými var uppbókað í Chicago, nema í úthverfum og í meira en klukkutíma akstursfjarlægð frá flugvellinum og því flaug bandaríska flugfélagið með mig til Minnieappolis, sem er í um 1000 km. fjarlægð frá Chicago. Þar fékk ég frítt hótel og dagpeninga að auki vegna óþæginda sem af þessu hlaust.


mbl.is Flugbannsvæði stækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cash!... not ash

Traffic-Sign-for-the-Dyslexic--32666Britain: WTF Iceland?!?  Why did you send us volcanic ash ? Our airspace has shut down.

 

Iceland: What ? It's what you asked for isn't it ?

 

Britain: NO! Cash! Cash you dyslexic fuck. CASH!

 

Iceland: woooops...


mbl.is Aldrei áður jafn mikil röskun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur einhver áhyggjur?

bean_laughing_hb"Steingrímur er núna innilokaður austan við Markarfljót og ekki ljóst hvernig hann kemst heim. Hann sagðist ekki hafa neinar áhyggjur af því."

Er ekki búið að rjúfa veginn við Þorvaldseyri líka?


mbl.is Mikilvægt að bjarga brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wawel kastali

Ég heimsótti Wavel kastala í Krakow, sumarið 2007.

c_users_notandi_documents_wawel_240034

Jóhannes Páll Páfi var biskup í Krakow og þjónaði í kirkju Wawel kastala áður en hann fór til Rómar. Sjá má blogg mitt og myndir af kastalanum HÉR


mbl.is Forsetahjónin jörðuð á sunnudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurjón lýgur

Ég tók myntkörfulán til bílakaupa og ég sóttist eftir þeim sjálfur. Það var enginn sem ráðlagði mér að gera það.

Öðru máli gegnir um mann sem ég þekki náið og var að byggja sér hús. Hann gekk á milli margra "sérfræðinga" frá bönkunum sem ráðlögðu honum eindregið að taka 30 miljón króna myntkörfulán. Þeir sögðu að þó gengi íslensku krónunnar versnaði, þá myndi það aldrei versna meira en sem næmi sparnaðinum sem fælist í lægri vöxtum.

Ég trúi þessum manni frekar en Sigurjóni Árnasyni.


mbl.is Húsnæðislánin voru „tómt rugl"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hliðarspor

Björgvini fannst vel til takast hjá sér að segja af sér ráðherradómi.

Því ekki að reyna aftur? Shocking

björgvinG

Textinn sést betur ef smellt er tvisvar á myndina


mbl.is Björgvin stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband