Þetta er nú meiri dellan. Auðvitað skiptir förðun heilmiklu máli í sambandi við aldursútlit.... í báðar áttir. Stúlkur undir lögaldri (og eldri) hafa í aldanna rás notfært sér kunnáttulega förðun til að koma sér þangað sem þær vilja komast.
Hér að neðan er sönnun, máli mínu til staðfestingar. Sjáið hvernig gjörsamlega er hægt að villa mönnum sýn með förðun, sérstaklega neðsta myndin.
![]() |
Áfengið er engin afsökun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 21.4.2009 (breytt kl. 17:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Spaugilegt | 21.4.2009 (breytt kl. 12:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mjög umdeilt var fyrir ráðstefnuna að Ahmadinejad skyldi boðið að tala þar. Áður en ráðstefnan hófst átti Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fund með honum þar sem hann minnti hann á ályktanir Sameinuðu þjóðanna þar sem kveðið er á um að síonismi falli ekki undir kynþáttahatur og staðfest er að helför gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni hafi átt sér stað.
Kynþáttahatur í mannkynsögunni er ekki nýtt en verður þó vonandi einhvern tíma lýst sem bernskubreki mannkyns.
![]() |
Ræða Ahmadinejads lofuð í Íran |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 21.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Stjórnmál og samfélag | 21.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Rétt áður en Bifreiðastöð Steindórs var seld bílstjórum hennar, að mig minnir 1982, keyrði ég nokkrar helgar á stöðinni og eftir að hún var seld þá keyrði ég þar í tæp tvö ár í fullu starfi. Þegar ég hætti þá hét ég því að keyra aldrei leigubíl aftur.
Fyrstu 2-3 mánuðirnir í leigubílsstjórastarfinu voru svakalega spennandi fannst mér, rétt rúmlega tvítugum manninum. En svo fór sjarminn af þessu og það varð skelfilega þreytandi að vera alltaf að vinna þegar flestir aðrir voru í fríi. Nokkur atvik frá þessum tíma eru mér ógleymanleg.
Eitt sinn fór ég með mann úr miðbænum og upp í Breiðholt. Þegar ég renni að blokkinni þá biður maðurinn mig að hinkra augnablik því hann þurfi að skjótast aðeins inn. Maðurinn kom aldrei til baka. Þetta gerðist einstaka sinnum og stundum tók maður eitthvað í pant ef maður treysti ekki viðkomandi. Úr og veski voru vinsælustu pant-hlutirnir en í dag eru það gsm-símar.
Nokkrum dögum seinna er ég pantaður vestur í bæ og þegar farþeginn sest í aftursætið þá sá ég að þetta er sami gaurinn og stakk mig af áður. Ég ákvað að segja ekki orð en hélt af stað áleiðis á áfangastað mannsins og á leiðinni hugsaði ég hvernig best væri að tækla málið. Þegar ég er að keyra austur Tryggvagötuna þá beygði ég skyndilega til vinstri að miðborgarlöggustöðinni í Tollhúsinu og stoppaði fyrir framan dyrnar. Ég snéri mér þá að manninum aftur í og sagði við hann að annaðhvort borgaði hann það sem hann skuldið mér strax, eða ég myndi leiða hann inn á stöðina. Svipurinn á manninum var "priceless" þegar hann góndi opinnmynntur á mig. Hann tók í fáti upp veskið sitt og muldraði einhverja afsökunarbeiðni um leið og hann týndi í mig seðlana og sagðist alls ekki vilja blanda lögreglunni í málið því hann væri nefnilega á skilorði. Þegar maðurinn hafði borgað, vísaði ég honum út og fékk mér kaffi á stöðinni.
Boðskapur sögunnar er: Þú skalt ekki stela..... frá leigubílstjóra
![]() |
Með þýfið í leigubíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 21.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sumt fólk virðist lifa lífinu í þeirri trú að álfyrirtæki og áliðnaðurinn í heild sinni, en þó sérstaklega frumframleiðslugreinin, sjálf álframleiðslan, séu "skítug" fyrirtæki. Og þá er það eiginlega í orðsins fyllstu merkingu.
"Hver mun vilja lifa og vinna í verksmiðjugettói?", sagði dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, en konan sú tjáði sig reglulega sem andstæðingur framkvæmdanna fyrir austan og var í Silfri Egils með reglubundnum hætti..... sællar minningar
Álverið á Reyðarfirði er nútímalegur vinnustaður sem krefst nútíma menntunnar. Það kemur á óvart hversu fjölbreytt störfin eru hjá álverinu en þau snerta flestar ef ekki allar iðn og tæknigreinarnar. Um 40% þeirra 450 manna sem vinna í álverinu eru háskóla eða tæknimenntaðir. Um 100 manns vinna í skrifstofubyggingunni.
![]() |
Lög um Helguvíkurálver samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
stóriðja og virkjanir | 18.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vegurinn um Hólmaháls, milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar er bæði mjór og brattur. Nú er verið að gera nýjan veg um 50 m. neðar í hálsinum og það verður mikil samgöngubót. Veghallinn fer úr 12% í 5-6%. Nýja vegstæðið er mjög fallegt en ég labbaði um það í dag.
Svona mun vegstæðið líta út á "beygjunni" í Hólmahálsinum.
![]() |
Víða snjóþekja og hálka á Norðaustur- og Austurlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 14.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
VG skuldar yfir 30 miljónir umfram eignir og þeir eru víst ekki í neinum vandræðum. Sjálfstæðisflokkurinn, sem er í grunninn þrisvar sinnum stærri flokkur og rekstrarkostnað sinn í samræmi við það, á eignir umfram skuldir, en flokkurinn á Valhöll því sem næst skuldlausa og geta því væntanlega sett húsið að veði fyrir endurgreiðslum á hinum "út-úr-korti" styrkjum sem formaðurinn tók við bligðunarlaust.
![]() |
Fengu meiri styrki árið 2006 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 12.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Hann hefur verið vinsæll frasinn undanfarin ár "Náttúran verður að njóta vafans". Ef alltaf væri farið eftir honum, þá er hætt við að lítið yrði um framkvæmdir.
Margir sérfræðingar á ýmsum sviðum á vegum Reykjavíkurborgar, hafa metið það svo að hestastús í Víðidal muni ekki hafa neikvæð áhrif á lífríki Elliðaánna. Þeir sem eru á móti þessu, gefa lítið fyrir rannsóknir sérfræðinganna, en segja þess í stað; "Náttúran á að njóta vafans".
Þegar vegtengingin var gerð milli Árbæjar og Breiðhots með Höfðabakkabrú, þá risu upp hávær mótmæli. Rökin gegn þessari miklu samgöngubót voru þau, að brúin og vegstubburin yfir dalinn, stefndi lífríki ánna í stórhættu. "Náttúran yrði að fá að njóta vafans". Mótmælin gegn framkvæmdunum vöktu mikla athygli á sínum tíma, en eftir framkvæmdina hefur auðvitað ekkert komið fram sem styður fullyrðingar umhverfissinnanna.
![]() |
Björk sat ekki fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umhverfismál | 12.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þegar uppvíst varð um daginn að Sjálfstæðisflokkurinn hefði þegið styrk frá Neyðarlínunni, þá spratt fólk úr fylgsnum sínum hér í bloggheimum og hrópaði niður flokkinn í vandlætingu sinni. Stuttu síðar þegar upplýstist að allir hinir flokkarnir höfðu líka þegið styrki frá opinberum fyrirtækjum, þá þögnuðu þeir sem hæst létu vegna Neyðarlínustyrksins.
Nú hefur einnig komið í ljós að hinir flokkarnir hafa mokað að sér styrkveitingum sem eru yfir 500 þúsund, rétt áður en lögin tóku gildi um áramótin 06-07, sem bönnuðu fjárstyrki yfir þeirri upphæð. Að vísu fengu hinir flokkarnir lægri upphæðir en Sjálfstæðisflokkurinn fékk, en samt tífalt hærri upphæð en nýu lögin kveða á um. Þegar einhver stelur, þá er ekki aðalatriðið hversu miklu, heldur einfaldlega sú staðreynd að viðkomandi stal. Þess ber auðvitað að geta að engin var að brjóta lög með þessum gjörningum, nema ef vera skyldi forsvarsmenn fyrirtækjanna sem gáfu þessar háu fjárhæðir, en þetta er auðvitað siðlaust.
Það þarf að lofta hressilega út í Valhöll ef flokkurinn hefur áhuga á að starfa áfram sem flokkur fólksins í landinu. Ég er reiður Geir H. Haarde fyrir að taka við þessu fé. Þetta voru blóðpeningar.
![]() |
Framhaldið í höndum formannsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 11.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 947166
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Kosið um örlög Gunnars Smára
- -mælinálin-
- LOSUM OKKUR ÚR NATO - SEGJUM OKKUR ÚR SCHENGEN OG SEGUM UPP EES SAMINGNUM.........
- VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN var 63,1 MILLJARÐAR í mínus í MAÍ samkvæmt LOKA-ÚTREIKNINGI:
- Hitt stóra málið
- Skortur á tákni er ekki sönnun fyrir illsku
- Blekiðjubáknið í Brussel
- Höfðu lofað öllu fögru í aðdraganda síðustu alþingiskosninga
- Lookah Seahorse Queen Review: Smoothest Electric Nectar Collector with Waterâ Filterâ
- Áfellisdómur OECD
Sumir segja að vinstri/hægri skilgreiningin á stjórnmálaflokkum sé þreytt. Þetta segja einungis þeir sem eru á atkvæðaveiðum og vilja engan styggja. Svona svipað og graðnagli sem ákveður að gerast tvíkynhneigður til að auka líkur sínar.
Hvenær ætlar Borgarahreyfingin að opinbera "hneigð" sína?