Vegaframkvæmdir í Hólmahálsi

Vegurinn um Hólmaháls, milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar er bæði mjór og brattur. Nú er verið að gera nýjan veg um 50 m. neðar í hálsinum og það verður mikil samgöngubót. Veghallinn fer úr 12% í  5-6%. Nýja vegstæðið er mjög fallegt en ég labbaði um það í dag.

001

Svona mun vegstæðið líta út á "beygjunni" í Hólmahálsinum.


mbl.is Víða snjóþekja og hálka á Norðaustur- og Austurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Mikið verð ég feginn þegar nýji vegurinn opnast. Verst er samt að þá verð ég líklega farinn frá Eskifirði.

Offari, 14.4.2009 kl. 06:35

2 Smámynd: Magnús Jónsson

Gunnar: ég bara verð að fara að gera mér ferð þarna austur, þú vekur forvitni mína með pistlum þínum, verst að ekki skuli vera til nógir peningar til að gegnum bora, þessi fjölla sem alstaðar eru til trafala og augnayndis.

Magnús Jónsson, 15.4.2009 kl. 00:24

3 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

þetta er ein vitlausasta vegaframkvæmd á Austurlandi.....og ég sem hélt að þetta væri friðað svæði

Einar Bragi Bragason., 17.4.2009 kl. 17:03

4 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Ég fæ heimþrá:)

Ásgeir Rúnar Helgason, 17.4.2009 kl. 21:26

5 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Það verður allt annað að keyra þarna. Góð samgöngubót fyrir Eskfirðinga og Norðfirðinga sem þurfa að keyra daglega á milli í álverið, oft í misjöfnum veðrum að vetri.

Guðmundur St Ragnarsson, 18.4.2009 kl. 00:09

6 Smámynd: Hafliði Hinriksson

ef að þetta er ein vitlausasta vegaframkvæmd á Austurlandi hvað á þá að kalla vegaframkvæmdir á Öxi?

Hafliði Hinriksson, 19.4.2009 kl. 17:44

7 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Öxi er viturlegri af því leiti að þar á einungis að gera heilsársveg ekki satt......

Einar Bragi Bragason., 19.4.2009 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband