Snillingur á ferð

Þetta eru tónleikar sem ég ætla ekki að láta fram hjá mér fara. Ég hef einu sinni séð Tull á tónleikum en það var á Akranesi 1993. Ég er svo heppinn að sonur góðs vinar míns sér um utanumhald þessa magnaða listviðburðar og ég er því nokkuð öruggur um að fá miða.

Hér fer Anderson á kostum með þverflautuna.


mbl.is Miðarnir rokseljast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djúpavík - Látrabjarg

Ég var á ferðalagi um Vestfirði í vikunni ásamt konu minni og syni. Við byrjuðum á að gista í Reykhólasveitinnni hjá dóttur minni sem er þar bóndakona með manni sínum og tveimur börnum. Þaðan fórum við í ökuferð norður á Strandir, til Hólmavíkur og svo norður úr alla leið að sundlauginni í Krossnesi. Á leiðinni þangað er farið fram hjá Djúpuvík, Trékyllisvík og Bjarnarfirði. Náttúrufegurðin er einstök á þessum slóðum. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella tvisvar á þær, ekki þó "tvísmella".

020

Trékyllisvík til vinstri og Norðurfjörður til hægri.

019

Sundlaugin í Krossnesi. Sennilega afskektasta sundlaug í heimi og þó víðar væri leitað. Það var gott að fá sér sundsprett í lauginni eftir aksturinn en heiti potturinn var alltof heitur.

031

Í bakaleiðinni fengum við okkur kvöldmat á Hótel Djúpavík. Frábær matur og góð þjónusta. Í Djúpuvík búa tvær manneskjur allt árið, en það munu vera hótelhaldararnir á staðnum. Einhverjir muna eflaust eftir hinni umdeildu sjónvarpsmynd Hrafns Gunnlaugssonar, "Blóðrautt sólarlag", en hún var tekin í Djúpuvík.

Á leið okkar til Ísafjarðar fórum við Barðaströndina til Látrabjargs, en þangað hef ég aldrei komið áður, né á Suðurfirðina; Patró, Tálknafjörð og Bíldudal. Eftir örstutt kynni mín af þessum stöðum, þá er það mín skoðun að þetta svæði sé eitt það skemmtilegasta og fallegasta á landinu. Á þessar slóðir ætlum við að fara aftur og gefa okkur þá lengri tíma til dvalar.

100

Mávager vakti athygli okkar á þessu útselshræi. Dynjandi í baksýn.

072

Á leiðinni að Látrabjargi er keyrt framhjá Breiðuvík. Mannvirkin á staðnum eru í hvarfi hægramegin á myndinni. Þar er nú starfrækt sumarhótel. Takið eftir hvernig vindurinn hefur feykt hvítum sandinum á hlíðina.

061

Vitinn á Bjargtöngum. Einhversstaðar sá ég auglýst að þarna væri hægt að fá lundapizzu og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar. Þarna var hvorki vott né þurrt að fá. Hótel Látrabjarg er í ca. 20 km fjarlægð.

049

Mér fannst þessi fuglaáhugamaður vera nokkuð djarfur á brúninni því strekkings vindur var þarna og þverhnípt er niður í stórgrýtta urðina, um og yfir 100 metra fall.

052

Þarna er mótívið sem heillaði fuglaáhugamanninn.... prófasturinn. Ég þorði ekki eins framarlega á brúnina og hann.

056

Horft í austur eftir Látrabjargi. Baldursbráin hangir þarna fyrir neðan grastóftina í lífvana jarðvegi og hefur það gott, enda útsýnið frábært. Takið eftir manneskjunni á bjargbrúninni í fjarska, örlítill depill hægramegin við miðju.

065

Vestasta umferðarskilti í Evrópu.

087

Bíldudalur er einstakur. Þar fengum við okkur næringu hjá "Sigga Ben", en það er veitingastaður sem hefur verið starfræktur í 23 ár. Geri aðrir betur í 100 manna þorpi. Fyrir ofan þorpið er gríðarlegt mannvirki í smíðum en það er leiðigarður fyrir snjóflóð. Hugsanlegum snjóflóðum úr fjallinu er beint frá íbúðabyggðinni. Nokkur hús eru þó á ótryggu svæði og þar er bannað að búa nema á sumrin. Eini gallinn við Bíldudal er að þar er enga kvöldsól að hafa.

085

Snjóflóðavarnargarðurinn á Bíldudal. Húsið í forgrunni er greinilega ekki á mynjaskrá.

082

Veitingastaður Sigga Ben.

074

Horft niður á bryggju frá veitingastað Sigga Ben.

Sonur okkar, hann Jökull, var á leið á landsmót ungmennafélaga björgunarsveitanna í Hnífsdal. Þar skildum við hann eftir og héldum heim á leið á Reyðarfjörð.


mbl.is Strandaði í Arnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissi ekki um innáskiptingar

17159_380_wÉg þekki Atla Eðvaldsson, persónulega ekki neitt en mér hefur aldrei líkað við hann sem þjálfara. Atli var mikill baráttujaxl sem leikmaður. Sumir hefðu jafnvel kallað hann grófan leikmann. Hann var ótrúlega markheppinn miðjumaður en mig minnir samt að hann hafir spilað í fremstu víglínu hjá Dortmund í Þýskalandi.

Undir stjórn Atla lék landslið okkar afspyrnu leiðinlega, og í þokkabót árangurslitla knattspyrnu. Hjá Þrótti, einhverjum árum fyrr, entist hann stutt og var látin fara. KR-liðið þurfti ekki þjálfara á þessum árum þegar Atli var þar við stjórn, ekki frekar en Skagamenn þegar Logi Ólafsson, núverandi þjálfari KR-inga gerði þá að Íslandsmeisturum.

Atli hafði ekki hugmynd um hve marga varamenn hann hafði notað í leiknum, þegar hann spurði Kjartan varmarkvörð hvort hann væri klár að koma í markið en Kjartan svaraði honum að það væri ekki hægt, skiptingarnar væri búnar. "Þá leið mér ekki vel," sagði Atli. Shocking


mbl.is Atli: Hér get ég varla tapað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleiðing ofsköttunar

einsteinshowphp_2Afleiðing ofsköttunar eru skattsvik. Vinur minn Albert Einstein átti í erfiðleikum með að skilja skattkerfin, þrátt fyrir yfirgripsmikla þekkingu á allskyns reikniformúlum. Annar vinur minn, Dr. Arthur Laffer, skildi þetta svolítið betur og kom fram með hina svokölluðu "Laffer - kúrfu" 

Í örstuttu máli þá er dæmið sett upp svona:

Hvað fær ríkið miklar tekjur ef skatturinn er 0%? Og svarið er auðvitað; ekkert.

Hvað fær ríkið miklar tekjur ef skatturinn er 100%? Sama svar; ekkert.

Þannig að það er ljóst að til þess að hámarka tekjur ríkisins af skattheimtu, þarf að finna rétta prósentustigið, einhversstaðar á milli 0 og 100%. Samkvæmt Laffer-kúrfunni er 50% allt of mikið en fæstir vinstrimanna kjósa að trúa því. Á Youtube má finna kynningarmyndbönd um Laffer-kúrfuna og ég læt eitt fylgja hér með.


mbl.is Margir Danir vinna „svart “
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankahrun, borgum ekki

contentcartoonboxslatecomMeintar skuldir íslensku þjóðarinnar vegna Icesave eru víst töluvert meiri en hinar ósanngjörnu birðar sem Þjóðverjar þurftu að taka á sig eftir Versalasamningana árið 1919. Flestir álíta að þeir samningar hafi verið rótin að seinni heimsstyrjöldinni. Þjóðverjar gátu í raun ekki staðið undir þeim samningum og töldu illa á sér brotið, höfðu engu að tapa.

Evrópa öll nötrar vegna litla Íslands. Hvaða afleiðingar hefði það fyrir evrópska banka ef Íslendingar létu reyna á rétt sinn meðal þjóðanna? Og ef Evrópusambandið nötrar.... er það þá ekki vísbending um sterka samningstöðu okkar í málinu? Gölluð bankalöggjöf hjá ESB á ekki að skrifast á örþjóð í Atlantshafinu. ESB hlýtur að taka ábyrgð líka.

Ég er með sáttatillögu í málinu. Deilum þessum Icesave skuldbindingum í höfðatölu landanna sem tengjast málinu beint... og málið er dautt.


mbl.is Óvíst um ábyrgð á Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Ásgeir á Íslandi

Samfylkingin, taglhnýtingur fjölmiðlasamsteypu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, mun aldrei getað þvegið sig af þeim almannarómi að hafa verið keypt með húð og hári af götustráknum.

IcelandDM_470x275


mbl.is Hverjir hafa mest áhrif í fjölmiðlum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hver er raunverulegur árangur?

Varla mæla þeir árangurinn í drepnum minkum? Ég hélt að tilgangurinn með þessu væri að hlífa öðru lífríki á svæðunum, en ekki er orð um breytingar hvað það varðar, ekki heldur á vef Umhverfisstofnunar.

Mink_bw

Minkurinn á sér enga náttúrulega óvini á Íslandi nema manninn.

Minks are small, short-legged members of the weasel family. The mink is an aggressive mammal that is adapted to a semi-aquatic life. Mink live in swamps, rivers, marshes, lakes and streams in North America, Europe, and the far west of Asia. Mink have a life span of about 8 to 10 years in captivity.

Anatomy: The mink has a pointed snout, very short legs, partly-webbed clawed feet, and a slender body. Minks range in size from 1.5 to 2.5 feet (45 to 78 cm) long (from snout to tail). Males are much larger than females.

Diet: Minks are carnivores (meat-eaters). They eat small mammals (like mice, rats and
muskrats), frogs, crayfish, fish, insects, eggs, and ducks.

Predators:
Owls, wolves, coyotes, and bobcats prey on the mink.

Heimild: http://www.enchantedlearning.com/subjects/mammals/weasel/Minkprintout.shtml 


mbl.is Minknum fækkað skipulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslimar eru hvergi til friðs

muslim11

school-photograph-cartoon


mbl.is Meira en 140 féllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Gælu" slanga kyrkti tveggja ára barn

ThaiGuyÉg sá á fréttastöðinni Fox News í gær frétt um að 12 feta slanga sem var "gæludýr" á heimili í Bandaríkjunum, hefði sloppið úr búri sínu um miðja nótt og skriðið upp í rúm tveggja ára stúlkubarns. Þar vafði slangan sér um háls stúlkunnar og kirkti hana. Hugsanlegt er að maðurinn sem átti slönguna og er fósturfaðir stúlkunnar, fái allt að 25 ára fangelsisdóm.

Í fréttinni kom fram að um 40 manns deyja árlega í Bandaríkjunum af völdum gæludýra af þessu tagi.


mbl.is Dýrin mín stór og smá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrin eru stærri í norðri

I%2BOnce%2BCaught%2Ba%2BCat%2BThis%2BBigÚlfar, refir og birnir eru stærri eftir því sem norðar dregur á hnettinum, ísbjörninn er t.d. stærstur bjarna. Þetta á einnig við um mannskepnuna, með einhverjum undantekningum þó. Íslenski hesturinn er reyndar smávaxinn, en sterkur og fótviss.


mbl.is Leyndarmál kindanna afhjúpað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband