"Bein leið, gatan virðist greið".
Ef litla Ísland, með allt niðrum sig, hefur beinan og breiðan veg í faðm ESB, þá segir það okkur að hagsmunir Evrópusambandsins séu töluverðir að við gerumst aðildarþjóð. Það væri nú ágætt að fá að vita hvað ESB "græðir" á okkur, áður en við skrifum undir afsalið.
![]() |
Leiðin styttri fyrir Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | 27.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég bloggaði um það um daginn, sjá HÉR
Þessi mynd er ekki frá nýja vellinum
![]() |
Góðir golfvellir á landsbyggðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 24.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Össur Skarphéðinsson sagði við afhendingu umsóknarinnar að Ísland hefði margt að bjóða ESB og tiltók m.a. fiskveiðistjórnunarkerfið. Þetta er afar sérkennilegt í ljósi þess að Samfylkingin vill kollvarpa kerfinu.
Það verður ekki upp á Össur logið
![]() |
Umsókn Íslands um ESB bíður afgreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | 24.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég hef miklar efasemdir um að farþegareglan sé raunhæf af mörgum ástæðum. Ef ökuleyfisaldurinn verður hækkaður í 18 ár þá erum við að tala um sjálfráða einstaklinga, auk þess sem lögreglan hefur í mörgu að snúast á þessum tíma sólarhringsins um helgar.
![]() |
Ólíklegt að höft á unga ökumenn skili árangri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 24.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Atli Eðvaldsson er að brjóta blað í íslenskri þjálfarasögu með ummælum sínum. Eftir tapleikinn á heimavelli gegn Fylki, sagði hann margt jákvætt í leik liðsins. Ég sá ekkert, frekar en þeir sem lýstu leiknum á st2 sport. Það var hrein hörmung að sjá til liðsins. Og í kvöld sagði hann margt jákvætt við leikinn, nefnilega allt ómögulegt. Sumir segja að það sé gott að falla til botns því þá náist viðspyrna, en Valsmenn eiga ekki að hugsa þannig. "Valur flýgur vængjum þöndum", brotlending er aldrei góð.
Atli á að einbeita sér að teppasölunni, er hann ekki enn í því annars?
![]() |
Sanngjarn sigur Fjölnis á Val |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | 24.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að vera á móti allri uppbyggingu í orkuiðnaðinum á Íslandi, er svo voðalega 2007 eitthvað. Nú eru aðrir tímar og fyrirsjáanlegt að bulláróður fær ekki eins mikinn hljómgrunn og þá.
Vindmyllur þykja umhverfisvænar en eiga sér þó hatramma andstæðinga víða. Þær eiga auðvitað ekki allsstaðar við, því mikil sjónmengun er af þeim. En það er merkilegt að þessi tækni skuli ekki notuð í einhverjum mæli á vindskerinu okkar. Sennilega er það vegna þess að hagkvæmara er að nota vatns og jarðvarmaorkuna.
![]() |
Vill efla samstarf og rannsóknir á jarðhita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
stóriðja og virkjanir | 23.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Kynþáttahatur er ekki nýtt af nálinni, ef marka má þessa mbl frétt
![]() |
Neanderdalsmaður féll fyrir kastvopni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | 22.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þegar Landsbankinn var einkavæddur, þá fylgdi honum EKKI ríkisábyrgð, þetta er alveg klárt. Þegar bankar féllu hver af öðrum í Bandaríkjunum í fyrra, þá valdi Bandiríkjastjórn úr þá banka sem þóttu lífvænlegir, aðrir voru látnir falla óbættir, utan þeirra tryggingasjóða sem þeir fjármögnuðu sjálfir. Viðskiptavinir þessara banka töpuðu einfaldlega fjármunum sínum þegar trygingasjóðurinn var tæmdur. Ástæðan fyrir því að Bretar vildu færa útibú Landsbankans undir breska lögsögu var einmitt sú að þeim var full ljóst að ekki var ríkisábyrgð á innlánsreikningunum.
Íslensk stjórnvöld ákveða í einfeldni sinni að játa ríkisábyrgð á innlánsreikningunum í Bretlandi, án þess að spyrja þjóðina álits og setjast síðan að samningaborði um greiðslu á Icesave. Þetta þykir lélegt visðskiptavit, meira að segja hjá byrjanda í faginu. Og svo er ímynduðum ESB-samningi veifað framan í utanríkisráðherra Samfylkingarinnar, af hollenska utanríkisráðherranum. Sá íslenski fellur á hnén og er tilbúinn að setja þjóðina í ánauð.
Íslendingar skrifuðu undir einhverskonar samkomulag við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, um að þjóðin stæði við skuldbindingar sínar um Icesave samkvæmt lögum. Svo sannarlega eigum við að gera það, en þá þurfum við líka að vita hvað lögin hljóða upp á.
Er það ekki?
![]() |
Óttaslegin utanríkismálanefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.7.2009 (breytt kl. 15:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég verð seint talinn til aðdáenda Ögmundar Jónassonar í pólitík, en þarna hefur hann svo sannarlega lög að mæla.
Símtal hollenska ráðherrans til Össurar var dónaskapur af verstu sort í milliríkjasamskiptum og sýnir úr hverju Samfylkingin er gerð og að erlendir stjórnmálamönnum er það vel ljóst. Þeir veifa hugsanlegum ESB-samningi framan í Samfylkinguna og vita sem er að það er allt sem þarf til þess að teyma þann auma flokk á hnjánum til nauðarsamninga um Icesave.
![]() |
Ögmundur: Hugsum um þjóðarhag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 21.7.2009 (breytt kl. 23:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Spaugilegt | 21.7.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði