Hvað segir Sóley sæta nú?

Þetta auðvitað dálítið brött fullyrðing:  „Allar fallegar stúlkur eru hægrisinnaðar“, en þær hugsa meira um lúkkið... finnst mér.

Og svo raka þær sig flestar undir höndunum Joyful

funny-picture-hooters-vs-feminists


mbl.is „Allar fallegar stúlkur eru hægrisinnaðar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálmstráið var laxinn

Fyrst var það Urriðafoss. Hann átti að búa yfir ómetanlegri fegurð og draga að sér ógrynni ferðamanna.

Þegar sú fullyrðing fékk lítinn hljómgrunn meðal almennings, þá kom fullyrðing um ómetanlegt gróið land sem færi undir uppistöðulón.

Þegar almenningur tók ekki undir það, þá var það laxinn. Einstæður laxastofn (sem aldrei var talað um áður) yrði í bráðri hættu. Þessu var slegið fram og fullyrt með fulltingi Orra Vigfússonar. Rannsóknir Landsvirkjunar bentu til að vissulega yrði laxastofninn fyrir áhrifum, en fjarri því að hann væri í einhverri hættu, enda gerðar viðeigandi ráðstafanir.

Nú skulu öll áform um virkjanir í neðri hluta Þjórsár, settar í bið. Náttúran á að njóta vafans.

Aðferðarfræðin er alltaf eins. Þegar ein fullyrðingin er hrakin þá kemur bara önnur... og svo önnur og önnur. Þannig var það í baráttu þessa fólks gegn Kárahnjúkavirkjun. Hver bomban af annarri.

Síðasta hálmstráið í þeirri baráttu var að fá erlenda konu sem titlaði sig verkfræðing til að segja þjóðinni að stíflan við Kárahnjúka væri dauðagildra sem gæti brostið.


mbl.is Virkjanir í Þjórsá settar í biðflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minning "Hansi" 1986-2012 - Skilaboð frá liðsmönnum Dalvík/Reynir

Hans Ágúst Guðmundsson Beck var fæddur og uppalinn á Kollaleiru í Reyðarfirði


Beint úr slangurorðabók Gilz?

feminist-circles"Búnaður". Mig rámar í að Egill Gilz hafi notað þetta orð eða svipað yfir konur. Voru bókmenntir hans gefnar út á frönsku? FootinMouth
mbl.is Kallaði konur „búnað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipulögð glæparíkisstjórn

Vinstristjórnin hefur með skipulögðum hætti brotið lög og reglur og hunsar meira að segja dómstóla á efsta stigi.

Hún hefur einbeittan brotavilja og flokkast því undir skipulögð glæpasamtök. Það á auðvitað að banna öll slík samtök.

organized-crime


mbl.is Vilja banna skipulagða glæpahópa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tiger fer 18 holur og hefur samt tíma fyrir golf

Þeir eru orðnir margir Tiger brandararnir Joyful

tiger


mbl.is Tiger upp í sjötta sætið á heimslistanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég leit við á pöbbnum

Kaffi Kósý heitir pöbbinn á Reyðarfirði og ég rek þar nefið inn öðru hverju á föstudags og laugardagskvöldum og fæ mér kaffi.

Þegar ég kíkti þar inn snemma á laugardagskvöldið, sátu tvær konur við barinn. Konurnar voru ansi sverar um sig og ég heyri fljótlega að þær tala ensku. Ég fór að spá í hreiminn hjá þeim og fannst hann vera nokkuð harður og datt í hug Skotland.

Ég ákveð að forvitnast um hvaðan þær væru og spurði:

"Hi, are you two girls from Scotland ?"

Önnur þeirra horfði illilega á mig og svaraði: "It's WALES you freaking idiot!"


hvalurÉg baðst samstundis afsökunar og sagði:

 "Sorry, are you two whales from Scotland?"

Glóðaraugað sést ekkert svo mikið ef ég púðra það....


Hræddir við Hells Angels?

42Það er ekki gefið upp hvers vegna heimili þeirra eru vöktuð af öryggisvörðum.

Ögmundur og Steingrímur hafa talað digurbarkalega um að uppræta skipulagða glæpastarfsemi. Eru vísbendingar um að þeir séu í hættu úr þeirri áttinni? FootinMouth


mbl.is Vakta heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Real Madrid - eyja, myndband

Ég rakst á þetta á fótbolti.net

Hrikalega flott. Takið eftir að smábátahöfnin er hönnuð eins og merki félagsins.

Þeir segja "Puplic opening" árið 2015. Mig grunar samt að pöpullinn muni ekki hafa efni á sumarfríi sínu á eyjunni Errm


Reykingar á svölum blokkaíbúða

a_gift_for_smokersFáir reykja inni hjá sér á Íslandi í dag. Þeir sem búa í fjölbýlishúsum fara því út á svalir ef þeir reykja. Reykurinn sogast inn um opna glugga í næstu íbúðum og veldur ama og óþægindum.

Ég bý á neðstu hæð í blokk og þarf að loka öllum gluggum þegar íbúarnir fyrir ofan mig reykja á svölunum, þ.e.a.s. þegar veðrið er stillt. GetLost


mbl.is Reykingar á svölum brot á reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband