Ég bloggaði um það fyrr í sumar, sjá HÉR , að mér finndist Atli Guðnason besti leikmaðurinn á Íslandi í dag. Hann er snöggur og fjölhæfur, á margar stoðsendingar og skorar slatta sjálfur.
Sumir segja e.t.v. að hann sé léttur og ekki nógu sterkur, en margir smáir en knáir knattspyrnumenn hafa skinið skært á stjörnuhimni fótboltans í gegnum tíðina. Má þar nefna Allan Simonsen hinn danska, Kevin Keegan og Paul Scholes. Scholes er reyndar svaka kubbur, þó hann sé innan við einn og sjötíu á hæð.
Af "nettum" íslenskum knattspyrnumönnum sem getið hafa sér gott orð á vellinum, má nefna Karl Þórðarson. Það var oft unun að fylgjast með Kalla Þórðar fífla andstæðing sinn upp úr skónum. Þetta fékk maður oft að sjá í landsleikjum á Laugardalsvelli hér í denn og íslenska hjartað tók kipp af fögnuði.
Ég segi að Atli Guðnason eigi klárlega að fá séns í landsliðinu.
![]() |
„Klárlega mitt besta sumar“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | 21.9.2009 (breytt kl. 09:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Melóna getur verið fallegur ávöxtur.... sérstaklega sem par.
Þessi nýja bandaríska könnun, sýndi einnig fram á sterka svörun hjá þeim sem hafa svokallaða "ávaxta-fetish". Þetta unga par tók þátt í könnuninni og hér eru einmitt melónur viðfangsefnið. Einnig voru prófuð epli, appelsínur og sítrónur.
Þegar kynin höfðu hlutverkaskipti..... þá var það gúrkudeildin
![]() |
Melónur með sömu virkni og viagra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 21.9.2009 (breytt kl. 18:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- MSNið mitt er: snaeros@hotmail.com
- Myspaceið mitt er: snaeros
- Maki: um maka frá maka til maka..hljóðbreyting: mökun
- Líf mitt snýst um: stafinn M: mat, mikilmennsku, meþadón, móðurlíf og masturbation
( http://www.nfmh.is/index.php?id=skaramuss&nemandi=2110912079&subid=profill )
Greinilega hress stelpa... verður ekki ellidauð sem kommi
![]() |
Nýr formaður ungra VG í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 20.9.2009 (breytt kl. 12:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég tel rétt að bíða með "Hátæknisjúkrahús". Kostnaður vegna framkvæmda á vegum hins opinbera er á bilinu 80 - 90 miljarðar og þar af er kostnaður vegna Landspítalans 50 miljarðar og Búðarhálsvirkjunar 30 miljarðar, samtals 80 miljarðar!
Reyndar held ég að framkvæmdafé vegna Búðarhálsvirkjunnar verði ekki tekið úr ríkissjóði, frekar en aðrar framkvæmdir Landsvirkjunnar. Fyrirtækið hefur séð um sín fjármál án meðlags úr ríkissjóði.
Gallinn við gangnagerð er að hún eru óhemju dýr framkvæmd miðað við þann mannafla sem hún krefst. Á móti kemur að jarðgangnagerð með tilheyrandi samgöngubótum, getur verið mjög arðsöm fyrir ríkissjóð þegar heildardæmið er reiknað á 20-30 árum.
En við megum ekkert vera að því að bíða eftir gróðanum "Ég vil fá´ana strax!.. og ekkert ástarkjaftæði...."
Virkjanaframkvæmdir hafa auðvitað víðtæk áhrif, bæði til lengri og skemmri tíma litið. Meira að segja V-grænir eru farnir að átta sig á því.
![]() |
Samkomulag um Vaðlaheiðargöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
stóriðja og virkjanir | 19.9.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Adidas og Puma slíðra sverðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.9.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Við voru að ljúka kúrs um vinnuvistfræði í ökukennaranáminu. Íþróttamenntaður sjúkraþjálfari á sjötugsaldri var fyrirlesari. Hann leysti hlutverk sitt vel af hendi, enda maðurinn hokinn af reynslu og og hafsjór af fróðleik.
Þegar kennarinn hafði frætt okkur um óæskilegar líkamsstellingar við ýmiskonar vinnu og einnig þær ákjósanlegu, þá Barst Raggi Bjarna og hangandi hönd hans í tal. Samkvæmt heilsukenningunni, var hornið á úlnlið Rangnars, alltof krappt og þessi líkamsstaða gæti leitt til liðamótaskemmda, eða einhverju þaðan af verra.
Upphandleggir okkar eiga að vera 0 - 30° út frá líkamanum og ákjósanlegt er 8°. Margir vinna með upphandleggi sína í 60° en slíkt getur leitt til ýmissa kvilla, s.s. vöðvabólgu víða í efri hluta líkamans, höfuðverk, svefntruflunum, kvíðaköstum o.fl.
![]() |
Raggi Bjarna býður öllum í afmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | 18.9.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég spilaði þennan vínil í drasl á árunum um og fyrir 1980. "Father and son" var í miklu uppáhaldi hjá mér.
![]() |
Cat Stevens aftur í sviðsljósið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | 17.9.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (70)
Foseti Bandaríkjanna er mannlegur og honum datt það sama í hug og miljónum sjónvarpsáhorfenda öðrum, þegar Kjáni West rauk upp á svið óboðinn til þess að girða niður um sig.
Hversu "Un-Cool" er það að vera rappari með "atitude", og allur heimurinn heldur að þú sért hálfviti?
Þeir eru reyndar fleiri rappararnir sem hafa haft orð á sér fyrir að reiða ekki vitið í þverpokum, eins og dæmið hér að neðan sýnir.
"Apparently, not only is rapper DMX crazy as the day is long but he?s also living in another galaxy. The rapper recently did an interview with XXL that can be described as nothing less than bizarre. DMX claims that he has never heard of anyone named Barack Obama and even proceeded to make fun of the presidential candidate?s name. Pfft, like the name DMX is ingenious. The rapper continued to dig a hole for himself saying he hasn?t followed the presidential race at all and said that ?The president is a puppet anyway. The president dont make no damn decisions.? Luckily, DMX is not allowed to vote because he?s a convicted felon."
(http://www.hitzonly.com/2008/03/19/dmx-is-an-idiot/ )
![]() |
Obama sagði Kanye West bjána |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 15.9.2009 (breytt kl. 21:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Margir eru þeirrar skoðunnar að leggi beri embætti Forseta Íslands niður. Ég er sammála þeirri skoðun ef það verður regla frekar en undantekning að sú manngerð sem prýðir núverandi forseta, verði viðloðandi embættið.
Kannski er þetta embætti óttalegt pjátur, en ég tel að það megi rækja starfið þannig að það sé til hagsbóta fyrir þjóðina. Ólafi Ragnari hefur e.t.v. tekist það á köflum en ófriðarbálið í kringum hann er tómt tjón.
![]() |
Fáir telja forsetann sameiningartákn þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.9.2009 (breytt kl. 13:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gamall bóndi í Louisiana í Bandaríkjunum hafði átt bæ sinn í þó nokkur ár. Í bakgarðinum við bæinn hans var lítil tjörn. Hún var fullkomlega löguð sem sundlaug og með grynnri og dýpri enda.
Gamli maðurinn ákvað að láta gamlan draum rætast og flikkaði verulega upp á umhverfið við tjörnina Hann setti upp þriggja holu golfvöll í kring, kokteilborð og stóla á tjarnarbakkann og nokkur epla og ferskjutré til skrauts.
Kvöld eitt ákvað sá gamli að ganga að tjörninni sinni til að eiga þar notalega stund. Hann tók með sér járnfötu því hann ætlaði að grípa með sér nokkra ávexti af trjánum í leiðinni. Þegar hann nálgaðist tjörnina, heyrði hann nokkuð háværar raddir og hlátrasköll. Skyndilega stendur hann fyrir framan hóp af ungum stúlkum sem voru allsberar í tjörninni hans. Þær flýttu sér út í dýpri endan þegar þær sáu þann gamla.
Ein stúlknanna kallar til bóndans reiðilega: "Við komum ekki uppúr fyrr en þú ferð!"
Gamli maðurinn svaraði að bragði: "Ég kom ekki hingað til að horfa á ykkur synda hérna naktar... eða skipa ykkur að koma naktar upp úr tjörninni". Sá gamli sýndi þeim stálfötuna sem hann hafði meðferðis og sagði: " Ég kom til að gefa krókudílunum".
Sumir gamlingjar geta enn hugsað hratt.
Spaugilegt | 11.9.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 10
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 947164
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- PPP-skjölin og ríkisútvarpið
- Herratíska : RALPH LAUREN með haustinu 2025
- " Báknið burt" - Bókun 35 - EES/ESB
- Tilgáta um brjálæði þjóðarleiðtoga
- Barbarrossabad
- Tveir strengir umræðunnar og ríkisstjórnin
- "Makkíavellískur" harmleikur íslenskra stjórnmála í beinni útsendingu
- Dýraníðingar.
- Biskup á trans-trippi í að breyta kirkjunni
- Bæn dagsins...