Ó... takk!.... en nei takk!

IMF+SignGrímulaust viðurkennir hollenski fjármálaráðherrann að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi verið notaður sem handrukkari fyrir Bretland og Holland. Samfylkingin með ESB að leiðarljósi hlýtur að fagna.

Mér skilst að ekki sé eins mikil þörf á lánsfjarmagni og upphaflega var gert ráð fyrir. Lausn Icesave-deilunnar á víst að þýða "hálfur sigur unninn". Vonandi er það rétt... en djöfull langar mig að sýna þessu liði fingurinn Angry


mbl.is Bos: Á von á jákvæðum viðbrögðum AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonbrigði fyrir grínista

Sarah Palin var himnasending fyrir uppistandara í Ameríku. Það hljóta að vera vonbrigði fyrir þá ef hún hverfur af sjónarsviðinu.

Hún hefur átt nokkur gullkornin í gegnum tíðina, t.d. þegar hún sagðist sjá Rússland út um gluggan heima hjá sér.

putin-palin

Svona í framhjáhlaupi.... Pútin á sér tvífara

putin


mbl.is Vinsældir Söruh Palin dvína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sætasta stelpan á EM

„Mig svimaði allt í einu og ég kúgaðist þegar ég var á leiðinni inná völlinn í upphafi seinni hálfleiks. Það leið hjá og það kom aldrei annað til greina en að halda áfram og núna er ég í fínu lagi," sagði Guðrún Sóley Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu sem fékk snert af heilahristing í leiknum gegn Frökkum á EM í Tampere í gærkvöld.

80479Guðrún og Candie Herbert rákust saman seint í fyrri hálfleik með þeim afleiðingum að Herbert þurfti að hætta keppni en Guðrún hélt áfram eftir að Reynir Björnsson læknir íslenska liðsins hafði heftað saman sár á höfði hennar.  Hún lék síðan allan síðari hálfleikinn og stóð fyrir sínu en fór beint í skoðun að leik loknum. Reyndar kom Guðrún ekki inná völlinn fyrr en eftir að seinni hálfleikurinn var hafinn, af fyrrgreindum ástæðum, og íslensku leikmennirnir voru því einum færri til að byrja með.

„Það er allt í fína með mig núna en þetta var dálítið stressandi þegar mig fór að svima þegar seinni hálfleikurinn var að hefjast. Ég fann ekki fyrir neinu í seinni hálfleik en svimaði síðan aftur eftir leikinn. Það var liðið hjá eftir klukkutíma og ég er tilbúin í slaginn gegn Norðmönnum," sagði Guðrún við mbl.is í dag. Hún æfir ekki með liðinu núna síðdegis en verður að öllu óbreyttu komin á fulla ferð á æfingu á morgun. (Mbl Íþróttir | 25.8.2009 | 14:56)

Þetta sýnir hversu höfuðhögg geta verið hættuleg. Annars finnst mér merkilegt að hún skildi spila áfram í mótinu miðað við þessa lýsingu. Ég hélt að læknar gerðu sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta getur verið.

Guðrún Sóley var valin sætasta stelpan á EM í Finnlandi í sumar.... hver valdi? 

Mér finnst þær allar sætar BlushInLove


mbl.is Guðrún frá í vikur eða mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir fara áfram?

funny-soccer-photo Frakkar, Portúgalir og Rússar fara áfram en erfitt er að spá um leiki Grikkja og Úkraínumanna. Ég ætla að veðja á Úkraínumenn.
mbl.is Frakkar mæta Írum í umspilinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun

Ég hef verið með skoðanakönnun varðandi Icesave frá því áður en Alþingi samþykkti lögin með fyrirvörunum í sumar. Ég ákvað að taka ekki út skoðanakönnunina eftir þá samþykkt og þáttaka í könnuninni tók aftur kipp þegar Bretar og Hollendingar samþykktu ekki fyrirvarana.

Ef eitthvað var, jókst andstaðan við Icesave-skuldbindinguna.

Ekki virðist hægt að sjá skýrar línur í afstöðu fólks m.t.t. flokkadrátta, nema auðvitað er meirihluti Samfylkingarinnar, ásamt mörgum ESB-sinnum úr öðrum flokkum, fylgjandi þessum nauðarsamningum.

Margir eru löngu búnir að fá hundleið á þessu máli og vilja samþykkja það svo þetta sé frá. Það sjónarmið heyrist að þó skuldbindingin sé dýr fyrir okkur, sé enn dýrara að hafa þetta óleyst, hangandi yfir okkur.

Úrslit skoðanakönnunarinnar er sem hér segir: (Ný könnun hér til hliðar)

Spurt er: Á Ólafur Ragnar að skrifa undir lögin um ríkisábyrgð vegna Icesave?

29,7%
Nei 70,3%
492 hafa svarað

mbl.is Kvittað fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sést.... hverjir borga skuldir sínar

iceslave
mbl.is Víða greint frá samkomulaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallegar myndir frá Reyðarfirði

Ég er voðalega óduglegur á fésbókinni en í gær fékk ég beiðni um fésbókarvinskap við Fjarðabyggð Austurlandi .

Á forsíðunni má lesa eftirfarandi: Þessi síða er ætluð fyrir alla íbúa og velunnara Fjarðabyggðar.
Hér birtum við atburði sem eru á næstunni og fréttir.
Verð víst að taka fram að Fjarðabyggð rekur ekki þessa síðu.
kveðja
Kristinn Þór Jónasson (Kiddi Þór)

Ég rak augun í myndir sem gamall skipsfélagi minn til fjölda ára á frystitogaranum Snæfugli SU20, Gunnar Bjarni Ólafsson, eða Gunni Baddi eins og hann er kallaður, hefur tekið og sett inn á síðuna. Gunni Baddi hefur gott ljósmyndaauga.

Hér að neðan eru myndir frá Reyðarfirði eftir Gunna Badda.

2856_1089043838445_1596944140_198530_4429409_n

2856_1089043878446_1596944140_198531_2433785_n

4402_1095647283527_1596944140_215504_4577974_n

4402_1098938165797_1596944140_224103_8106322_n

4864_1109126940510_1596944140_250578_7125088_n

4864_1112685989484_1596944140_260347_4552857_n

4882_1106612957662_1596944140_244200_4578585_n

4972_1107025367972_1596944140_245601_4139577_n

8116_1176471384079_1596944140_435238_3032974_n

10728_1177710095046_1596944140_437803_6471856_n

10732_1155530220563_1596944140_382672_6450588_n

10732_1156275559196_1596944140_384736_5111368_n

10732_1156696689724_1596944140_385849_1546764_n

111

222


Kynþokkafullar nærbuxur

Mörgum finnst hulið, eða a.m.k. hálfhulið hold, kynþokkafyllra en algjör nekt ef klæðið dregur fram kynþokkan. Með aldrinum hef ég færst í þann flokk.

Sumir myndu kalla það "fetish", að finnast nærbuxur kynþokkafullur klæðnaður.

sexy-panties-and-naughty-knickers-pale-pink-with-dark-pink-silk-band-by-sexy-panties-

a96820_p3a96820_p5

a96820_p4a96820_p2

a96820_p7

 

 


mbl.is Fox og Depp kynþokkafyllst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitler var góður maður

Hvað ert þú að gera hérna? Ætlaðirðu nokkuð að ausa yfir mig svívirðingum?

2d6midh

Örugglega góð fyrirsögn ef maður vill bústa upp heimsóknartölurnar hér LoL


mbl.is Auglýsing með Hitler harðlega gagnrýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristjanía.... í þá gömlu góðu...

Fyrir nokkrum árum fóru viðskipti með hass aðalega fram í fríríkinu Kristjaníu í útjaðri miðborgar Kaupmannahafnar. Þá datt danskinum í hug að uppræta hass í borginni og hætta að snúa blinda auganu að fríríkinu.

Auðvitað upprættu þeir ekkert hassið og það vissu allir að myndi ekki gerast, nema þeim sem datt þetta snjallræði í hug. Hinsvegar jókst ofbeldi á götum borgarinnar til muna í tengslum við baráttu glæpamanna um yfirráð yfir markaðinum.


mbl.is Skotinn í höfuðið í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband