Sætasta stelpan á EM

„Mig svimaði allt í einu og ég kúgaðist þegar ég var á leiðinni inná völlinn í upphafi seinni hálfleiks. Það leið hjá og það kom aldrei annað til greina en að halda áfram og núna er ég í fínu lagi," sagði Guðrún Sóley Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu sem fékk snert af heilahristing í leiknum gegn Frökkum á EM í Tampere í gærkvöld.

80479Guðrún og Candie Herbert rákust saman seint í fyrri hálfleik með þeim afleiðingum að Herbert þurfti að hætta keppni en Guðrún hélt áfram eftir að Reynir Björnsson læknir íslenska liðsins hafði heftað saman sár á höfði hennar.  Hún lék síðan allan síðari hálfleikinn og stóð fyrir sínu en fór beint í skoðun að leik loknum. Reyndar kom Guðrún ekki inná völlinn fyrr en eftir að seinni hálfleikurinn var hafinn, af fyrrgreindum ástæðum, og íslensku leikmennirnir voru því einum færri til að byrja með.

„Það er allt í fína með mig núna en þetta var dálítið stressandi þegar mig fór að svima þegar seinni hálfleikurinn var að hefjast. Ég fann ekki fyrir neinu í seinni hálfleik en svimaði síðan aftur eftir leikinn. Það var liðið hjá eftir klukkutíma og ég er tilbúin í slaginn gegn Norðmönnum," sagði Guðrún við mbl.is í dag. Hún æfir ekki með liðinu núna síðdegis en verður að öllu óbreyttu komin á fulla ferð á æfingu á morgun. (Mbl Íþróttir | 25.8.2009 | 14:56)

Þetta sýnir hversu höfuðhögg geta verið hættuleg. Annars finnst mér merkilegt að hún skildi spila áfram í mótinu miðað við þessa lýsingu. Ég hélt að læknar gerðu sér grein fyrir hversu alvarlegt þetta getur verið.

Guðrún Sóley var valin sætasta stelpan á EM í Finnlandi í sumar.... hver valdi? 

Mér finnst þær allar sætar BlushInLove


mbl.is Guðrún frá í vikur eða mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband