Það er í raun sorglegt að mál af þessu tagi skuli afgreitt eftir flokkspólitískum línum.
Ég fullyrði að umtalsverður hluti stjórnarþingmanna hafi ekki kosið eftir eigin sannfæringu í málinu sjálfu, heldur vegna annarra hagsmuna.
Samfylkingarþingmenn eru dregnir áfram af þeirri sannfæringu að samþykkt ríkisábyrgðarinnar liðki fyrir og auki líkur á hraðferð inn í Evrópusambandið og V-grænir af ótta við að áratuga draumur um hreina vinstristjórn renni út í sandinn.
Ef þessi vinstristjórn liðast í sundur, þá verður það verkefni annara kynslóða en okkar, að leiða saman vinstrimenn að nýju. Steingrímur Joð gerir sér fulla grein fyrir þessu.
Ef bjáninn á Bessastöðum skrifar undir þessi lög... tja, hvað gerist þá?
P.s. Ég held að Ögmundur hafi sagt nei eftir að hafa fullvissað sig um að atkvæði hans skipti ekki sköpum og að frumvarpið færi í gegn. Öðru máli gegnir um Lilju Mó, ég hef meira álit á henni.
Alþingi samþykkti Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 30.12.2009 (breytt 31.12.2009 kl. 00:52) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 3
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 946008
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Ranghugmynd dagsins - 20241222
- Vantraust á eigin þingflokk?
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Snjólag í Reykjavík um jól og áramót frá 1921
- Nokkur hundruð milljarðar út um gluggann
- Áfram haukur í utanríkisráðuneytinu
- Níundi áratugurinn leysti vandamál, þeir fyrstu á 21. öldinni bjuggu þau til
- Karlar sem brjóstfæða & pólitískar ofsóknir ...
- Pólitískar vendingar með hækkandi sól
- Ný stjórn, skoðum hana:
Athugasemdir
Sorgardagur
Einar Bragi Bragason., 30.12.2009 kl. 23:57
Sammála
Gunnar Th. Gunnarsson, 31.12.2009 kl. 00:00
Já sorgardagur. Sæll. Gunnar Flokkspólitísk niðurstaða nei trúarleg niðurstaðar ,,Hvað varðar mig um þjóðar hag B.B." sú er útkoman.
kv Gleðilegt ár Sigurjón
Rauða Ljónið, 31.12.2009 kl. 00:07
Í grein í Pressunni eftir H.H.G. er eftirfarandi upptalning sem ekki er hægt annað en að taka undir:
-
Gunnar Th. Gunnarsson, 31.12.2009 kl. 00:28
Ögmundur sagði í atkvæðagreiðslu um að vísa málinu í þjóðaratkvæði að hann greiddi tillögunni ekki atkvæði, né öðrum breytingartillögum og heldur ekki Icesave málinu sjálfu. Þannig að afstaða hans var ljós áður en atkvæðagreiðslan um Icesave hófst.
Ögmundur verður eins og aðrir að njóta sannmælis.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.12.2009 kl. 02:28
Ég er orðin leiður á að lesa dónaskap um okkar ágæta forseta,mest frá fólki úr þeim flokki sem kom Íslensku þjóðinni í þessi vandræði því að selja bankana og gefa græðgisvæðingunni lausan tauminn.Ég er svo reiður út í þessar aðstæður,sem eru Sjálfstæðisflokknum að mestu að kenna að ég er við það að labba við hjá fólki sem talar svona á blogginu og berja það. Viltu vinsamlega tala af meiri virðingu um sameiningartákn þjóðarinnr. Virðingarfyllst,Kári Friðriksson.
Kári Friðriksson, 1.1.2010 kl. 17:29
Hvaða sameiningartákn ert þú að tala um Friðrik? Vinstrimanna?
-
Ef þú þolir ekki að heyra álit meirihluta þjóðarinnar á þessum manni, þá skaltu halda þig fjarri þessari bloggsíðu og fara með ofbeldi þitt annað.
Gunnar Th. Gunnarsson, 1.1.2010 kl. 17:49
Sammála þér Kári þessum hægri fuglum er vart viðbjargandi og ekki er þessi bloggsíða fuglum né fiskum til framdráttar eða hvað sem það nú er sem kom megninu af landsmönum í þessar ógöngur,að vera sífellt að úthúða fólki sem er ekki sömu skoðunar og hægri öfgamenn segir allt sem segja þarf um þankaganginn,þú segir mönnum að fara annað með ofbeldi sem ég sé hvergi nema hjá þér þegar þú ert í spreng og reiður útí allt og alla, þetta endar með magasári hjá þér
Æja Honkanen (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.