Í enska boltann með þig drengur

51088_700_wEiður má ekkert vera að því að aðlagast eitt né neitt. Hann verður 32 ára á næsta leiktímabili og ef eitthvert "comeback" á að koma.... þá þarf það að koma fljótlega.
mbl.is Arnór: Eiður hefur ekki uppi nein áform að fara frá Mónakó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Án þess að ég VITI það þá efast ég um að hann hafi áhuga á að vinna meira og leggja meira af mörkum fyrir laununum sínum en staðan er í dag. Hann hefur alltaf virkað frekar latur.

Elvar (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 22:03

2 identicon

Afhverju ætti hann að nenna þessu eitthvað frekar á Englandi? Ég er því miður ekki að sjá að hann sé að reyna, allavega sér maður það ekki í þessum leikjum sem hann hefur spilað og fylgist ég bara nokkuð vel með. Lýtur út fyrir mér að hann sé í þessu eingöngu núna til að afla sér tekna í stað þess að reyna að hafa gaman af þessu. Hann er á fínum launum og eru skattar ekki lágir í Monako? Ef hann hefði verið að hugsa um að koma sér aftur á þann stall sem hann var hjá Chelsea þá hefði hann aldrei farið til Monako, þetta er nú ekkert smá stórt skref niður á við. Úr barca í Monako er eins og að fara úr K.R í Reynir Hnífsdal. það gerir enginn nema annaðhvort launin eru svona góð eða það er ekkert annað í boði.Eiður átti séns á að fara í lið eins og West Ham, Totthenam, Everton og jafnvel Aston Villa. Fyrir mér er meira spennandi að fara t.d í Tottenham, Everton og Aston Villa en að fara í  Monaco fyrir leikmann með metnað.

Auðunn Atli (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 23:30

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það hefur alltaf verið hans "Akkilesarhæll" að hann er húðlatur og hreinlega nennir ekki að leggja á sig meira en hann þarf, en þar liggur hundurinn grafinn "Hann virðist ekki lengur hafa hugmynd um hversu mikið hann þarf að leggja á sig í dag til þess einfaldlega að fá að vera með".  Ef eitthvað er að marka fréttir og fjármál hans eru í "rúst" þá er ekki ólíklegt að það hafi einhver áhrif á frammistöðu hans á vellinum.  En mitt álit er það að hann sé bara búinn að vera.  Forysta Chelsea gerði sér alveg grein fyrir því og seldi hann á hárréttum tíma.

Jóhann Elíasson, 17.12.2009 kl. 23:37

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Einhver hlýtur samt að vilja hann á Bretlandi, neðri liðin í úrvalsdeildinni og svo auðvitað 1. deildin. Það þýðir ekkert fyrir hann að setja sig á háan hest lengur. Hann verður að taka það sem að honum er rétt.

Baldur Hermannsson, 18.12.2009 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband