Skoðanakúgun í VG

Ég sá frétt á Mbl.is í morgun að hópur "vel menntaðra einstaklinga" úr grasrót VG hefðu haft samband við Lilju Mósesdóttur og sagt henni að segja af sér og setja varamann inn á þing fyrir sig. Ég fæ ekki betur séð en þessi frétt hafi verið fjarlægð af vef Mbl.

Skoðankúgun af ýmsu tagi hefur lengi verið þekkt úr röðum harðra vinstrimanna og oft virðist sem þeir finni sína verstu óvini úr eigin röðum, samanber Þetta , ásamt athugasemdum.


mbl.is VG með forval í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta er því miður býsna algengt í öllum þessum pólitísku flokkum. Sumir virðast halda að stjórnmálaflokkur sé klúbbur. Svo er það alltaf spurning hvernig á að nota orðið "menntaður" Gunnar minn. En það er svo sannarlega gott að Lilja féll ekki í þann fúla pytt að þegja yfir þessum ræfildómi.

Árni Gunnarsson, 13.11.2009 kl. 09:59

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mér leist ekkert á Lilju í upphafi en hún vex stöðugt í áliti hjá mér.

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.11.2009 kl. 11:10

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.11.2009 kl. 11:50

4 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Gunnar Th. leystu mig úr álögum. Ég er búinn að liggja yfir toppmyndinni á blogginu þínu og get enn ekki áttað mig á hvaðan hún er. Fjörðurinn gæti verið Mjóifjörður eystra en byggðin er of mikil til að það gangi upp. Hvaðan er myndin?

Sigurður Grétar Guðmundsson, 13.11.2009 kl. 17:54

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hún er frá Reyðarfirði

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.11.2009 kl. 03:56

6 Smámynd: Sigurjón

Tekið ofan úr Fagradal?

Annars er leiðinlegt til þess að vita að svona ömurlegt fólk vilji skipta sér af því sem kjörnir fulltrúar á Alþingi gera...

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 14.11.2009 kl. 06:48

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hún er tekin frá "Skessu", í botni Reyðarfjarðar, sunnanverðum. Fagridalur er lengst til vinstri á myndinni

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.11.2009 kl. 16:29

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Það er nú vart hægt að halda í heilindin ef alltaf á að gera eins og manni er sagt að gera. En svo er líka spurning hvort að skoðanir eru ekki í samræmi við stefnuskrá að hætta í viðkomandi flokki?

Jóhanna Magnúsdóttir, 15.11.2009 kl. 01:24

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég veit ekki til þess að það sé í stefnuskrá nokkurs flokks að íslenskir skattgreiðendur eigi að borga skuldir óreiðumanna erlendis. 

En talandi um stefnuskrá þá efa ég að sá stjórnmálaflokkur finnist, þar sem allir eru 100% sammála stefnuskrá síns flokks.

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.11.2009 kl. 04:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband