Refsingar

knowledge-against-prison1Ég er ekki talsmaður langra fangelsisdóma almennt, nema e.t.v. vegna alvarlegra ofbeldisbrota. Stundum þarf samfélagið að verja sig gegn hættulegum mönnum. Ég tel að hið gamla hugtak, "betrunarvist", eigi ekki við um þann gjörning að einangra fólk frá samfélaginu, án þess að einhverskonar meðferð fylgi í kjölfarið.

Það á ekki að líta á fangelsisdóma sem "hefnd samfélagsins" á afbrotamönnum. Að senda þá í "Glæpaskóla Ríkisins", með fríu fæði og húsnæði, er ekki góð fjárfesting.  En samfélag heiðarlegs fólks hlýtur að fagna því ef hægt er að snúa mönnum til betri vegar. Það kostar peninga, en þeir skila sér til baka.... margfalt.

Ég geri engar athugasemdir við fangfelsisdóma þeirra sem réðust á lögregluþjónana sem fjallað er um í fréttinni sem ég tengi við. Gegn svona ofbeldisbrotum þarf að bregðast við af hörku. En ég vona að þessum afbrotamönnum verði boðin einhverskonar aðstoð á meðan á fangavistinni stendur.

 


mbl.is Í fangelsi fyrir árás á lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er með lausn við þessu - Ekki hleypa þeim út meðan þeir lifa, sérstaklega þá sem margrjúfa samfélagssáttmálann. Mér er alveg sama þótt það kosti peninga. ;)

Arngrímur (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 16:43

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Líka ef barnið þitt ætti í hlut?

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.10.2009 kl. 17:34

3 identicon

Ef barnið manns er óforbetranlegur glæpamaður þá má alveg loka það inni í fangelsi í LANGAN tíma.

Ef barnið hans ætti í hlut þá kannski vantaði eitthvað uppá uppeldið af hans hálfu.

Á enginn að gjalda afleiðinga gjörða sinna af því að hann á ættingja?

Haukur Þór Smárason (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 18:02

4 Smámynd: Hulduheimar

Gott innlegg Gunnar. Ég hef reyndar lengi verið þeirrar skoðunar að beita eigi samfélagsþjónustu í meiri mæli. Ef menn brjóti af sér og lendi í fangelsi eigi þeir að vinna að lágmarki 10-14 klst. á dag (fer eftir dóminum) meðan á refsivist þeirra stendur. Þeir eiga ekki að hanga iðulausir inni í fangelsum með það eitt til dundurs að lyfta lóðum og háma í sig stera. Hugsa mætti sér að einhverjum þeirra væri gefin kostur á námi í hluta af vistinni sem kæmi þá til frádráttar vinnutímanum.

Hulduheimar, 28.10.2009 kl. 18:05

5 identicon

Þetta eru allt útlendingar. Það það ekkert að vera að dæma svona menn og eyða tíma og peningum í svona drullupakk. Það á bara að senda svona drasl úr landi og taka af þeim allar eigur hér á landi og þeir eiga ALDREI að fá að koma aftur hingað

óli (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 18:10

6 identicon

Fyrirgefðu, ég ætla nú ekkert að verja þessa menn.

Ég sjálf er hálf filippensk og skammast mín svolítið, út af hvað þeir gerðu og auk þess þekki ég þá. En verið alveg róleg (Óli) á því að vera með þessi (rasista) leiðindi að kalla þá drasl og þeir ættu að fara frá landi og aldrei koma hingað til Íslands.

Þetta eru manneskjur og þær gera mistök, alveg eins og þú og allir aðrir. Ég er samt sammála því að þeir eiga að fá að gjalda því sem þeir gerðu.

En eins gott að þeir læri af þessu. Takk fyrir mig :)

Lovísa (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 19:24

7 identicon

Ég á ekki börn ;)

Arngrímur (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 21:56

8 identicon

Svo er annað í þessu sem fær mig til að líða ögn betur með þetta - Þeir sem berja lögguna svona fá hlýlegar móttökur á Hverfisgötu, lyftupartí, detta niður stiga osfrv.

Og til að endurkomubann virki almennilega á að dömpa Schengen strax og taka up 100% vegabréfaskoðun inn og út úr landinu, þannig að þetta farbann verði raunhæft úrræði.

Arngrímur (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband