Þeir sem ekki vilja hrófla við neinu á hálendi Íslands, hafa alveg rétt fyrir SÉR, af því ÞEIM finnst það. Það er þeirra smekkur og um hann verður ekki deilt. Þeir sem eru ekki á sömu skoðun og verndunarsinnarnir, benda á sitthvað máli sínu til stuðnings og þá helst byggðasjónarmið og þjóðhagslega hagkvæmni af raskinu.
Þegar verndunarsinnarnir reyna að nota þau rök að arðsemi sé af verndun, þá fylgir gjarnan "ef" röksemdunum. "Ef" þetta eða hitt er gert, þá megi hafa miklar tekjur af ferðamönnum á hálendinu.
Þegar "ósnortið víðerni" er aðalmálið í augum verndunarsinna, þá er erfitt að sjá hvernig mikill straumur ferðamanna, með tilheyrandi þjónustu á svæðin, samræmist ósnortna víðerninu. Og ef engin þjónusta á að vera við ferðamennina í ósnortna víðerninu til að skemma það ekki, hvernig á þá að "græða" á þessum svæðum?
Í dag eru tiltölulega lítið hlutfall erlendra ferðamanna á Íslandi í hálendisferðum, en þó hefur þeim auðvitað fjölgað í hlutfalli við gríðarlega fjölgun ferðamanna hingað á undanförnum árum. Eitthvað mun arðsemin af þeim minnka trúi ég, ef þarf að bjarga þeim úr ógöngum eins og sagt er frá í þessari frétt og slíkt mun örugglega aukast í sama hlutfalli og fjölgun ferðamanna.
Aukning ferðamanna undanfarið er ljós í myrkrinu, segja margir. En hvernig ferðamenn viljum við hingað? Varla ferðamenn sem hafa kostnað í för með sér, er það?
Ég hef miklar efasemdir um að við eigum að beina ferðamönnum mikið inn á hálendið og er þá sama hvenær ársins það er. Á veturna er raskið örugglega minnst vegna frosts og fanna, en þá er von á illviðrum hvernær sem er, auk lítillar birtu. Á vorin er ófært víðast hvar. Á sumrin er fært en spjöll vegna umferðar veruleg. Á haustin er allra veðra von.
Hálendisferðir er mikil upplifun, það vita allir sem reynt hafa. En ég hef miklar efasemdir um að við eigum að markaðssetja þær eitthvað sérstaklega.
Móðir Náttúra
Bílar festast á hálendinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Ferðalög | 12.10.2009 (breytt kl. 16:29) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 3
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 944687
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Spursmál
- model og stirni
- Samkvæmt kæru vill Álfur Birkir trans-konur inn í kvennfangelsi, íþróttir og einkasvæði kvenna
- Halla Hrund og Ástþór
- Ég forseti
- Bæn dagsins...Ræða Péturs.
- Samanburður: Fréttaskýring vs. þvæla dulbúin sem fréttaskýring
- Fylgjum almennum mannrétti gegn öllu spillingarvaldi, kjósum Höllu Hrund !
- Fánadeilur eilífar
- Croissant-sjokk, pítsugleði og stór misskilningur
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Styttist í nýjustu tíðindi
- Slydduél ætti ekki að koma á óvart
- Ný sýn hlaut flest atkvæði
- Kviknaði í nýjum bíl í Vesturbænum
- Myndir: Fjölmenni er Katrín opnaði kosningaskrifstofu
- Djúp hjólför rugla skynjarana
- Ráðuneytið kannast ekki við samráð
- Einn fær rúmlega 1,6 milljónir króna
- Góð kjörsókn í Vesturbyggð og Tálknafirði
- Sló frá sér eftir að hafa verið staðinn að hnupli
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.