Afturhaldskommatittir

Er þetta sýndarmennska í Svandísi? Er hún með þessu að standa við eitthvert ábyrgðarlaust orðagjálfur, þegar VG var í stjórnarandstöðu?

Það var auðvitað kominn tími til að fólk fengi að sjá fyrir hvað VG stendur. Ekki er það með hinni vinnandi stétt, svo mikið er víst.

Feðginin Svandís og Svavar, hljóta að vera dýrustu feðgin Íslandssögunnar.

633616077183629932-communism


mbl.is Skilja ekki ákvörðun ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Mér finnst svona framganga jaðra við efnahagslegt hryðjuverk. Þetta er alveg óskiljanlegt

Finnur Hrafn Jónsson, 29.9.2009 kl. 18:50

2 Smámynd: Andspilling

Svandís stendur vörð um réttlætið meðan peningavaldið reynir að nauðga náttúrinni og innleiða krabbameinsvaldandi stóriðju og Álversósóma með tilheyrandi þennslu og framtíðar hrunum fyrir samfélagið. Held þú sért alveg að misskilja Animal Farm.

Andspilling, 29.9.2009 kl. 20:26

3 Smámynd: Sigurjón

Allir eru jafnir, en sumir eru jafnari en aðrir...

Ég fæ ekki skilið um hvaða réttlæti Svandís stendur vörð.

Sigurjón, 29.9.2009 kl. 22:56

4 Smámynd: Andspilling

Þú verður heldur ekki beint í vitinu Sigurjón Vilhjálmsson svo ekki er skrítið að þú fáir það ekki skilið!

Andspilling, 29.9.2009 kl. 23:13

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég vil ekki persónulegt skítkast við þá sem tjá sig hér, Andspilling

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.9.2009 kl. 00:35

6 Smámynd: Sigurjón

Þú ert ekki skrifandi almennilega, hvað þá að vera dómbær um vit fólks sem þú þekkir ekkert.  Ég hins vegar hvet þig til að skrifa sem oftast og mest, því ekkert er til þess fallið að fæla fólk frá málstaðnum en öfga- og hatursfull skrif þín á opinberum vettvangi.

Ömurlega nafnlausa raggeit!

Sigurjón, 30.9.2009 kl. 00:36

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Andspilling!? 

Þessi framkoma þín, rakalaus og nafnlaus fúkyrðaflaumur um ekki neitt er skólabókadæmi um heimsku og fláræði. Þetta skilar ekki því sem því virðist við fyrstu sýn ætlað að gera.

Þú hefur sakað aðra um að villa á sér heimildir, komdu sjálfur fram undir nafni eða haltu kjafti að öðrum kosti og skríddu ofaní holu við hæfi.

(Þetta innlegg var sett inn við síðustu færslu og er endurtekið hér)

Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.9.2009 kl. 11:56

8 Smámynd: Dystópía

dembum bara 5 milljón tonna álveri á einhvern góðan stað, þá reddast þetta allt saman. Höfum þetta bara eitthvað risastórt dæmi þannig að við getum örugglega eytt allri okkar orku í það. Virkjum allt sem hægt er að virkja, helst í gær!

Fyrrverandi ríkisstjórnin kom okkur í skuldasúpuna og núverandi ríkisstjórn ætlar eftir fremsta megni að skjalfesta hana svo við þurfum örugglega að borga!

Svo margir fastir í vinstri-hægri þrætum hérna! Þetta er ekki fótboltaleikur. Allir flokkarnir eru handónýtt drasl að mínu mati. Hvernig geturðu misskilið Animal Farm á þennan hátt???! Snýst ekkert um vinstri-hægri kjaftæði. Lestu hana aftur, þ.e.a.s ef þú hefur lesið hana yfir höfuð!

Dystópía, 30.9.2009 kl. 12:26

9 Smámynd: Andspilling

Einu öfgarnir og eina blinda HATRIÐ kemur frá þér og þínum líkum Sigurjón.

Andspilling, 30.9.2009 kl. 13:06

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég veit ekkert hvað þú ert að tala um Dystópía, það er ekki hægt að misskilja Animal farm

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.9.2009 kl. 13:35

11 Smámynd: Andspilling

Þá sérðu að Davíð og Napoleo (Svínið) eru einn og sami maðurinn!

Andspilling, 30.9.2009 kl. 14:29

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Talandi um að misskilja Animal Farm ...

Ef ekki koma málefnalegri athugasemdir frá þér, Andspilling, þá mun ég ekki leyfa þær frá þér hér. 

-

Það skemmtilega við athugasemdarkerfið er að þá koma fleiri sjónarmið og umræður... rökræður. Ekkert slíkt er í gangi hjá þér, bara leiðindi. Þú hefur fengið gula spjaldið.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.9.2009 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband