Ég var í göngunni - myndir

Ég var í þessum gönguhópi í frábæru veðri, umhverfi og félagsskap.

049

Hér er hópurinn að búa sig af stað neðan Geithúsárgils, 60 manns og 3 hundar.... eða tveir og hálfur því tíkin mín er svo lítil, hálfgert "hund-líki", silki-terríer, um 5 kg að þyngd. Þessi ganga var liður í gönguviku Fjarðarbyggðar: " Á fætur í Fjarðabyggð". Leiðsögumaður var Þóroddur Helgason, fræðslustjóri Fjarðabyggðar.

050

Nokkuð bratt var á fyrsta hálftíma göngunnar, upp með vestanverðu gilinu, en enginn var að flýta sér og hvílt var með reglulegu millibili.

051

Horft í austur að Reyðarfirði

055

Komin upp brattan. Fallegur berggangur hinumegin í gilinu.

059

Ofan gilsins eru nokkrir fallegir fossar. Sævar Guðjónson (sá er fann sprengjuna) er þarna með ungan sinn á bakinu.

062

Svo var vaðið yfir Geithúsaánna og þau yngstu borin á bakinu

061

Við Maggi sáum Sléttubóndan, Sigurð Baldursson, stika þurrum kloflöngum fótum yfir stiklur í ánni dálítið ofar. Við ætluðum að leika það eftir, en það var bjánaleg bjartsýni Joyful

065

Komin austur fyrir. Þóroddur er glaðlegur að vanda, enda komin í land ættaróðalsins, Seljateigs. Helgi Seljan, fyrrv. alþingismaður, er faðir Þórodds, en Helgi tók sér ættarnafnið frá bænum. Helgi Seljan, kastljósmaður er bróðursonur Þórodds.

070

Þessi mynd er tekin skammt frá þeim stað sem sprengjan fannst. Konan í rauða klæðinu er Helga Jónsdóttir, bæjarstýra Fjarðabyggðar

076

Gilið er mjög tilkomumikið

078

Þarna stendur Þóroddur yfir tóftum geithúsanna og undirbýr fræðsluerindi

Ferðin var í alla staði vel heppnuð fjölskylduganga. Seinna um kvöldið fór ég á tónleika í Randúlfs-sjóhúsi á Eskifirði, en það er staður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara ef hann er á ferð hér eystra. Jóhanna Vigdís Arnardóttir, leik og söngkona var þar með létta og skemmtilega söngdagskrá fyrir fullu húsi.


mbl.is Búið að eyða hættulegri sprengju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Gunnar, þetta eru flottar myndir úr glæsilegu umhverfi.

Magnús Sigurðsson, 26.6.2009 kl. 08:31

2 identicon

Það ætti að virkja þessa fossa, ekki láta orkuna fara óbeislaða hjá...það er engin eftirsjá í þeim né umhverfinu þarna í kring...

HStef (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 14:29

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Alveg rétt hjá þér, það er til nóg af þessu út um allt

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.6.2009 kl. 17:27

4 Smámynd: Offari

Tókstu enga mynd af sprengjuni?

Offari, 28.6.2009 kl. 21:11

5 Smámynd: Hafliði Hinriksson

http://picasaweb.google.com/bjsv.arsol/GeithSRgil#

hér eru nokkrar myndir sem voru teknar ofan í gilinu í fyrra sumar.

Hafliði Hinriksson, 28.6.2009 kl. 21:12

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei ég sá aldrei sprengjuna, var kominn aðeins á undan niður og nennti ekki að labba upp aftur. En ég sá hana í vélinni hjá Sævari.

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.6.2009 kl. 22:54

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Flottar myndir Hafliði

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.6.2009 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband