Dómstóll götunnar enn á ferð

Á árunum 1982 -84 var ég leigubílstjóri á Steindóri og keyrði mennina tvo sem dóu í slippnum, oft á þeim árum. Mennirnir voru í mjög mikilli eiturlyfjaneyslu á þeim tíma og ég man að fréttin um lát þeirra kom mér og kollegum mínum ekki á óvart og enginn efaðist svo ég viti til um að þeir hefðu tekið sitt egið líf. Vinnubrögð lögreglunnar eru hins vegar ámælisverð og að rannsóknargögnum um málið hafi verið haldið frá aðstandendum mannanna er óskiljanlegt.

Svo virðist sem margir gangi út frá því sem vísu að dauði mannanna hafi borið að með öðrum hætti en sjálfsvígi og telja jafnvel að lögreglan hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Ég skil ekki hvernig fólk getur komist að síkri niðurstöðu. En einhver handvömm hefur greinilega átt sér stað við rannsókn málsins og það réttlætir að sjálfsögðu að málið sé skoðað á ný. En það er einkennilegt að gefa sér það fyrirfram að niðurstaða úr rannsókn nú, verði önnur en úr þeirri fyrri.

Það verður athyglisvert að fylgjast með framvindu málsins og ég vona að aðstandendur mannanna verður sáttir að þeirri vinnu lokinni. Það er ástæða til að hrósa fólkinu fyrir að gefast ekki upp allan þennan tíma og það er skömm að því að fólkið skuli hafa þurft að þjást vegna málsins. Nógur er harmleikurinn samt. 


mbl.is Andlátið skoðað aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ég veit lítið um þetta mál og ætla því ekki að fullyrða um hvað gerðist. Það sem ég hef þó lesið er að það var breitt yfir þá eða bílinn. Það gerir dauður maður ekki. Þar fyrir utan, ef þeir voru í bullandi neyslu, er ekki líklegt að þetta hafi verið uppgjör? Þeir hafi skuldað dílernum og hann misst þolinmæðina?

Sjáum hvað löggan finnur út úr þessu.

Villi Asgeirsson, 14.3.2009 kl. 20:28

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jú, það er alveg möguleiki

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.3.2009 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband