Enn eitt plottið

Ingibjörg Sólrún sá sína sæng útbreidda, þegar skoðanakannanir sýndu að hún var umdeild sem foringi í flokki sínum. Það stóð aldrei neitt annað til fyrir nokkrum dögum síðan, en að hún héldi áfram sem formaður Samfylkingarinnar.

En hvað breyttist?

Skoðanakannanir, Errm sjá HÉR

967U2168Þær raddir hafa lengi heyrst að Dagur B. Eggertsson sé réttborinn arftaki Ingibjargar í formannsstóli Samfylkingarinnar. Ég leyfir mér að fullyrða að þessi ákvörðun Ingibjargar hefur ekki komið Degi í jafn opna skjöldu og hann staðhæfir í þessari frétt. 

 

"Rökrétt að Jóhanna taki við" My ass! GetLost

Einkennismerki Dags þegar hann tjáir sig, er að hann notar gjarnan lúkurnar og þá með þumalinn upp... eins og hann sé að húkka sér far. Hvort hann húkki sér far til vinstri eða hægri, á eftir að koma í ljós. Það vita allir að hugur hans stendur til vinstri, en það er ekki á vísan að róa þegar Samfylkingarfólk er annars vegar

Dagur mun bjóða sig fram sem formaður Samfylkingarinnar, ef Jóhanna gefur ekki kost á sér. Ég held að hún geri það ekki.


mbl.is Rökrétt að Jóhanna taki við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband