Frambjóðendur í Norð-Austur á Reyðarfirði

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í NA-kjördæmi héldu kynningarfund í Fjarðahóteli á Reyðarfirði í gærkvöldi. Frambjóðendurnir voru 9 talsins, fjórir karlar og fimm konur.

Svona kynningarfundir eru kannski ekki merkilegir en þó nauðsynlegir. Við vitum fyrir hvað núverandi þingmenn okkar í kjördæminu standa og þeir stóðu sig vel, þau Kristján ÞórJ úlíusson  og  Arnbjörg Sveinsdóttir . Arnbjörg er að mínu mati vanmetinn stjórnmálamaður sem helgast sennilega af því að hún talar lítið í ræðustól á þingi, en það er enginn mælikvarði á dugnað viðkomandi þingmanns. Af nýju frambjóðendunum fannst mér Tryggvi Þór Herbertsson  standa upp úr og Björn Ingimarsson en einnig var þarna glæsileg og athyglisverð kona frá Akureyri, Anna Guðný Guðmundsdóttir 

002

Á fundinum í gær, frá vinstri: Þórður (Doddi) Guðmundsson, fundarstjóri Reyðarfirði, Arnbjörg Sveinsdóttir Seyðisfirði, Björn Ingimarsson Þórshöfn, Kristín Linda Jónsdóttir Þyngeyjarsveit, Soffía Lárusdóttir Egilsstöðum, Tryggvi Þór Herbertsson (Neskaupsstað) Reykjavík, Gunnar Hnefill Örlygsson (?), Anna Guðný Guðmundsdóttir Akureyri, Sigurlaug Hanna Leifsdóttir (?) og Kristján Þór Júlíusson Akureyri. 

Sjá http://www.profkjor.is/?action=kjordaemi_nordaustur 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Enn og aftur fréttir maður eftirá af fundum sjálfstæðismanna. Ég var reyndar að ninna í gærkvöld svo ég hefði hvort eð er ekki komist.

Offari, 6.3.2009 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband