Ný skoðanakönnun

Ég vil benda á nýja skoðanakönnun hér til hægri. Endilega takið þátt.

Fólk virðist gleyma því að það var Alþngi sem heimilaði hvalveiðar með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Það voru einungis þingmenn VG og örfáir úr Samfylkingunni sem greiddu atkvæði gegn hvalveiðum.

Sjávarútvegsráðherra ákveður magnið, kvótann og Ingibjörg Sólrún sagði fyrir örfáum mánuðum síðan að sú ákvörðun væri og ætti að vera alfarið í höndum hans.

þegar lögin um hvalveiðar voru samþykkt, mig minnir að það hafi verið árið 2003, þá heyrðist sami söngurinn í talsmönnum hvalaskoðunarfyrirtækja og nú. En hvað hefur gerst? Stöðug aukning hjá hvalaskoðunarfyrirtækjunum! Hvað er vandamálið?

Þuríður Bacmann, þingmaður VG, sagði um daginn í viðtali við Ingva Hrafn á ÍNN, að áhættan væri alltof mikil, því einboðið væri að hvalveiðarnar settu m.a. fisksölusamninga okkar í hættu. Á sama tíma fagna allir hagsmunaaðilar í sjávarútvegi veiðunum. Hvorum er meira mark takandi á; Þuríði Bahmann eða aðilum sem selja fiskinn?


mbl.is Ákvörðun um hvalveiðar í endurskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Eitt er ljóst að það þarf að láta reyna á þetta, hvort aðalinn í ESB er svona sterkur. 

Júlíus Björnsson, 3.2.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Við eigum bara að veiða okkar hval og engar refjar

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.2.2009 kl. 17:24

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er mjög góð þáttaka í skoðanakönnuninni og vilji þjóðarinnar er skýr. Gallupskönnunin er einnig mjög afgerandi hvalveiðum í vil þar sem úrtakið er yfir 1500 manns. 67% eru þar fylgjandi veiðunum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.2.2009 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband