Ömurleiki neikvæðninnar

Ég sé að nokkrir blogga um pælingar forsetafrúarinnar á afar neikvæðum nótum og sumir á svo ömurlegan máta að ég verð eiginlega bálillur. Hvað er eignilega að þessu fólki? Ég hélt að allar hugmyndir væru velkomnar sem miða að því að koma þjóðinni á réttan kjöl, en þær ekki dregnar í dilka eftir því hver kemur með þær.

c_documents_and_settings_hp_owner_my_documents_my_pictures_dorritMér hefur alltaf þótt Dorrit einlægnin uppmáluð og það er eiginleiki sem er eftirsóknarverður. Hvort hugmyndir hennar eru allar raunhæfar eða ekki, get ég ekki dæmt um, en t.d. þetta með að bjóða upp á listaverkageymslur hljómar ágætlega í mínum eyrum. Nóg er af húsnæðinu hérna, sumt fullklárað en tómt, annað hálfklárað. Og svo hefur lengi verið draumur margra Íslendinga að gera Ísland að heilsubæli, sem gæti orðið að veruleika í höndunum á fólki sem hefur fjármagn og kann að fara með það.


mbl.is Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna er ég sammála þér loksins Gunnar.

Um að gera fyrir flesta að koma með sem fjölbreyttastar hugmyndir og fróðari menn en ég geta dæmt um hvort þær séu lífvænlegar og vonandi framkvæmt eina eða tvær.

Það seinasta sem við þurfum núna er að hugmyndir séu skotnar niður í fæðingu vegna þess að einhverjum hugnast ekki sá sem kom fram með hugmyndirnar.

Karma (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 16:13

2 Smámynd: Hlédís

Góður pistill - Gunnar! Hún kemur sennilega e-u af þessu af stað.

Hlédís, 2.2.2009 kl. 16:20

3 Smámynd: Anna Guðný

Það er nú bara svoleiðis að sumir virðast nærast á neikvæðni og tortryggni út í náungann. Reyna því að tala niður alla jákvæðni og þá sem virkilega vilja taka nátt í einhverju uppbyggjandi. Svo eins og þú segir, þessar hugmyndir hafa jú sumar komið fram áður eins og að gera Ísland að heilsuparadís, eða að uppfæra ferðamennskuiðnaðinn.

Áfram Dorrit

Anna Guðný , 2.2.2009 kl. 19:56

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

Sammála þér, Gunnar.

Villi Asgeirsson, 7.2.2009 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband