Problematiker

Ég er ekkert hissa að Svíar sjái vandamál í hvalveiðum okkur, vandamál eru atvinnugrein hjá þeim, en mér er illa brugðið ef Norðmenn taka undir þessa gagnrýni. Norðmenn veiða sjálfir miklu fleiri hvali en við og hafa gert í mörg ár.  

 Frumbyggjar í Bandaríkjunum, Kanada, Grænlandi, Rússlandi og e.t.v. í fleiri löndum fá að veiða sína hvali óáreittir og því skyldum við ekki fá að gera það líka? Erum við ekki frumbyggjar á Íslandi með langa veiðihefð á hvölum? Eða þurfum við að klæðast loðfeldum af ísbjörnum, selum og sauðnautum til þess að teljast frumbyggjar?

Hvalaskoðunarmenn halda því fram að hagsmunir þeirra séu í hættu vegna hvalveiða en þeir geta ekki bent á dæmi um slíkt, t.d. frá Noregi, máli sínu til stuðnings. Auk þess gefa hvalveiðar heilmikil tækifæri til þess að laða að erlenda ferðamenn. Nýr bloggvinur minn fjallar um nokkrar góðar hugmyndir í þessari bloggfærslu HÉR

Fishing%2Bis%2BsexyGefðu manni fisk og hann hefur að borða í einn dag. Kenndu manni að veiða og..... hann situr á bakkanum allan daginn og drekkur bjór LoL


mbl.is Norræn gagnrýni á aukinn hvalveiðikvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband