"Öryggisventill þjóðarinnar"

Þegar haldið var upp á 100 ára heimastjórnarafmælið, þá var forsetaembættinu ekki boðið á nokkurn hátt að koma að því. Forsetinn fékk einungis boðskort til að hlusta á ræður annarra. Þetta líkaði Ólafi ekki og lét sig hverfa úr landi, fór á skíði til Bandaríkjanna með Dorrit. Að hátíðarhöldunum loknum var boðað til Ríkisráðsfundar, en venja er að Forsetinn stýri slíkum fundum, en heimilt er að handhafar forsetavalds geri það ef Forsetinn er ekki viðlátinn.

Ólafur Ragnar varð æfur af reiði þegar hringt var í hann til Bandaríkjanna og honum tilkynnt um ríkisráðsfundinn. Hann var búinn að smella á sig skíðunum snemma morguns og var á leiðinni í fjallið. Hann skíðaði ekkert þennan dag. Hann sagði síðar að hann tæki hlutverk sitt sem aðal manninn á ríkisráðsfundum mjög alvarlega.

Davíð Oddsson gerði grín að Ólafi fyrir vikið og sagði "Þetta er einhver reginmisskilningur hjá blessuðum forsetanum" Forsetinn hafði í viðtölum sagst vera öryggisventill þjóðarinnar "... og það er þá þýðingarmikið að öryggisventillinn haldi jafnvægi þegar ekkert er að gerast", sagði Davíð.

Davíð er snillingur LoL


mbl.is Ekki tími fyrir málfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Hvað ertu að rifja upp gamlar spælingar. Óli er í frontinum í dag, og stendur sig glimrandi.

sei sei.

hilmar jónsson, 27.1.2009 kl. 18:55

2 Smámynd: Offari

Er öryggisventillinn í lagi?

Offari, 27.1.2009 kl. 19:04

3 Smámynd: Hlédís

Sandkassaleikur!  Sá nokkur þegar DO ullaði

Hlédís, 28.1.2009 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband