Kaninn getur verið klikkaður

stupid_american_idiot8 ára gamall drengur í Bandaríkjunum myrðir föður sinn af yfirlögðu ráði og særir annan. Það þykir frétt í landi tækifæranna að drengurinn skuli metinn ósakhæfur af sálfræðingi. Saksóknari hefur áhyggjur. Hann hefur áhyggjur af því að ef dómari úrskurði drenginn ósakhæfan, því þá muni fórnarlömbin aldrei sjá réttlætinu fullnægt.

Ætli sé nokkur leið að koma vitinu fyrir þessa menn? GetLost


mbl.is Níu ára ekki sakhæfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Nei, það er engin leið. Í mörgum öðrum löndum ganga menn alltof langt í hina áttina - unglingar vaða uppi með skemmdarverkum og misþyrmingum vegna þess að þeir þekkja lögin og vita að ekki má refsa þeim.

Baldur Hermannsson, 31.12.2008 kl. 01:04

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Alveg rétt Baldur

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.12.2008 kl. 01:09

3 identicon

Eru þeir ekki kallaðir AÐGERÐASINNAR á Íslandi af sumum ?

Bjorn Jonsson (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 04:18

4 Smámynd: Birgir Hrafn Sigurðsson

já, í mörgum löndum. Íslandi þar með talið. 

Að mínu mati er þetta foreldrunum að kenna. Það sögðu allavegana grunnskólakennararnir mínir.

Birgir Hrafn Sigurðsson, 31.12.2008 kl. 09:46

5 identicon

Pabbinn átti þetta skilið, fyrr eða síðar hefði strákurinn annaðhvort verið drepinn af pabba sínum eða þá fyrirfarið sér til þess að flýja ofbeldið

Gísli Snorri (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 02:59

6 Smámynd: Baldur Hermannsson

Gísli, eftir því sem ég hef lesið í bandarískum fréttaveitum þá er þetta rétt - þótt ófagurt sé.

Baldur Hermannsson, 1.1.2009 kl. 03:12

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Aðstæður drengsins skipta í raun engu máli. Hann á aldrei að vera dæmdur sakhæfur. 

 ára gamall drengur...glætan

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.1.2009 kl. 07:15

8 Smámynd: Baldur Hermannsson

Tja, það hefur samt mikil áhrif á afstöðu manns til drengsins og þess verknaðar sem hann framdi. Einnig hlýtur það að hafa mikil áhrif á framtíð hans sjálfs - hvers konar meðferð hann fær, sálfræðihjálp og svo framvegis.

Baldur Hermannsson, 1.1.2009 kl. 15:01

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, harðræðið sem drengurinn bjó við ætti nú að vinna hug og hjörtu bandarísku þjóðarsálarinnar.

Fólkið í landinu fellir fleiri tár yfir "Bambi", "Lassí" og "Willy" , heldur en mannfólki í neyð.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.1.2009 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband