Vinátta er verslun með kærleika

Það er gaman að lesa góðan og innihaldsríkan texta. Ég tók þessa tilvitnun hér að neðan úr bókinni á náttborði mínu. Nú langar mig að spyrja ykkur lesendur góðir: Vitið þið hver höfundurinn er? Hvað heitir bókin? Til þess að skemma ekki getraunina fyrir öðrum þá megið þið svara með því að segja hver fimmti bókstafurinn er, í nafni þess staðar sem höfundurinn bjó lengstum á og hve mörg orð eru í bókartitlinum.

"Hve auðtaldir þeir sem hafa vin átt svo að þeir hafi eigi villt honum sýn með lygum sínum! Mér hafa reynst allir vinir brigðulir, sem vissu hið sanna um auvirðuleik minn, og hverju hef ég ekki leynt þá! Þeir hafa jafnvel ekki grun um það sem jafnan á leikinn að baki starfshvata minna, hið glæpsamlega í vilja mínum! Ég stend fyrir sjónum allra þeirra hreinn og flekklaus, já og hlæ að því milli tannanna hve mér hefur tekist að blekkja þá! Vér eigum aldrei svo vingott við neinn að lygin skipi þar ekki öndvegi, að öðrum kosti eignuðumst vér aldrei vin. Já vér ljúgum jafnvel að Guði fram á banadægur vort!

Vinátta er ríkust af síngirni, sí-krefjandi, sí-heimtandi, reikningsglögg og kvikinsk. Menn gera gott vinum sínum til að hljóta gleði þeirra og þökk, og krefjast af þeim að fá að sitja í fyrirrúmi, en gleymi vinurinn að votta þér aðdáun sína, snýr þú við honum baki og kippir að þér hendinni. Ef orði hallar ertu engum jafnfljótur að reiðast sem vini þínum og við engan jafnseinn að sættast. Vinátta er verslun með kærleika".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fimmti stafurinn er e og það eru þrjú orð í titlinum.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 20:54

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hárrétt hjá þér Eva. Asskoti varstu glögg

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.12.2008 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband