Hér er myndbandið af fröken Goodspeed

Simon Cowell hefur oft verið miklu grimmari við þátttakendur í ameríska Idolinu en þetta. Stúlkan sagði eftir áheyrnina og höfnunina að hún hefði að vísu verið "pitchie" á einum eða tveimur nótum í laginu, "Big deal!". Meiri smámunasemin í þessum dómurum Shocking

Eitt sinn kom maður á æfingu hjá kirkjukórnum okkar hér á Reyðarfirði. Hann hafði ekki sungið í kór áður en það þurfti ekkert að spyrja hann hvaða rödd hann syngi, því hann var með afbrigðum dimmraddaður. Þegar hann talaði, þá víbraði umhverfið og skóreimarnar okkar losnuðu. Þegar við hófum sönginn, þá kom í ljós að maðurinn var ekki alveg að átta sig á kröfunum sem gerðar eru til röddunar í kór. Stundum þarf bassi að syngja nokkuð háar nótur, en þær söng maðurinn áttund neðar. Rétta nóttu, bara áttund of lága Joyful. Þegar reynt var að útskýra fyrir manninum að hann yrði að syngja áttund ofar, þá horfði hann ráðvilltur á kórstjórann og sagði: "Nú, skiptir það máli?"

Maðurinn kom ekki á aðra æfingu.

 


mbl.is Engar breytingar á American Idol þrátt fyrir dauðsfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, sumt fólk hefur skrítnar hugmyndir um hvernig raddaður söngur virkar

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.12.2008 kl. 21:30

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

Merkilegt, eins og mér hefur alltaf fundist fyndið að fylgjast með þessu er það nú allt öðru vísi vitandi það að þessi manneskja, sem greinilega hefur verið veik fyrir, drap sig að þessu loknu eða að minnsta kosti fljótlega sé fréttin nokkuð rétt. Ég fylltist sorg við að horfa á þetta.

Mjög sorglegt, en stelpuskottið hefði væntanlega ekki átt möguleika í kórinn ykkar Gunnar. Ekki einu sinni sem nótnavörður

Baldvin Jónsson, 18.12.2008 kl. 23:27

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hún hefði getað hellt upp á kaffi

Auðvitað var stelpugreyið fárveik og þannig er það nú bara.

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.12.2008 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband