Tímaeyðsla

waste_of_timeAllir vita að tillagan verður felld, líka þeir sem bera hana fram. Stjórnarandstaðan vill ríkisstjórnina frá svo hún komist að aðgerðarborðinu. Mér finnst ekki líklegt að fólk sem telur tíma Alþingis vel varið í svona umfjöllun, vera líklegt til afreka. Afhverju koma stjórnarandstöðuflokkarnir ekki að vinnu ríkisstjórnarinnar með einhverjar bitastæðar tillögur?   

Ég hef haft það á tilfinningunni undanfarna 2 mánuði, að pólitíkusar hafi haft um nóg að hugsa, en greinilega ekki stjórnarandstaðan. Hún  óttast rækileg rannsókn óháðra erlendra aðila á hlut Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins, bankanna, Jóns Ásgeirs og annarra aðila að atburðarás síðustu missera og ára. Eftir að niðurstöður slíkrar rannsóknar liggja fyrir, er eðlilegt, að þjóðin kveði upp sinn dóm í kosningum. Það eru einungis þeir, sem óttast slíkar niðurstöður, sem vilja rjúka í kosningar áður.


mbl.is Rætt um vantrauststillögu á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband