Niðrandi þróun

Ísland var best í heimi.... líka dýrast, en nú erum við að missa þann titil líka. Það þótti og þykir enn, lélegt að selja sig ódýrt. Jæja, við erum hvort eð er lélegir pappírar.

funny-pictures168


mbl.is Ísland ódýrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Það er punktur í þessu.   Því miður.  

Marinó Már Marinósson, 21.11.2008 kl. 00:30

2 Smámynd: Camel

Ég lít á þetta eins og þú, það er verið að auglýsa okkur eins og ódýra mellu.  Var ekki reynt á sínum tíma að auglýsa konurnar okkar sem fallegar og ódýrar dægrastytingar, þetta eer engu betra

Camel, 21.11.2008 kl. 00:58

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ódýrt getur verið neikvætt í markaðslegu tilliti. En þetta var náttúrulega fáránlega dýrt hérna fyrir útlendinga, þegar krónan var of sterkt skráð. Það þarf að vera einhver eðlilegur millivegur þarna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.11.2008 kl. 01:08

4 identicon

Sæll Gunnar, Skv. gengi þá hefur verðlag uþb. fallið um 50%  Ef ég man verðlag rétt síðast þegar ég var á Íslandi (2005) þá getur verðlag varla verið talið ódýrt á Íslandi jafnvel þó það félli um 50%  Dollarinn hefur dólað í kringum 75 krónurnar í nokkur ár en er núna í 140 krónum.  Það þýðir að ferðamenn sem gátu ekki ferðast til Íslands vegna verðlags geta nú látið það eftir sér og skilja gjaldeyri eftir á Íslandi.  Sama má segja um útflutningsatvinnuvegina sem ætti að ýta undir útflutning en draga úr innflutningi.  Nú er bara spurning hvort krónan fýkur upp eða sekkur þegar henni verður ýtt á flot aftur.  Ef ég væri "gamblari" þá myndi ég senda einhverja dollara á kontóið mitt heima, en ég held ég láti það vera í augnablikinu!

Kveðja!

Arnór Baldvinsson (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 02:34

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sæll Arnór. Í raun er merkilegt hvað vörur hafa hækkað lítið hérna, að undanskilinni dagvöru.

Hvað er annars að frétta úr Texas? Farið að hausta á þínum slóðum?

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.11.2008 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband