Fyrsta skrefið er dýrmætt

Ísland var fyrst allra þjóða að viðurkenna sjálfstæði Eistlendinga. Á vef sendiráðs Íslands í Helsinki má lesa eftirfarandi:

"Þann 26. janúar 2006 afhenti Hannes Heimisson, sendiherra, Arnold Rüütel, forseta Eistlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Eistlandi með aðsetur í Helsinki. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Tallinn.

Að afhendingu lokinni átti sendiherra fund með forseta Eistlands. Í viðræðunum lagði sendiherra áherslu á náinn vinskap þjóðanna og vaxandi samskipti, bæði á vettvangi viðskipta og stjórnmála. Forseti tók undir þetta og kvaðst jafnframt vilja nota tækifærið og þakka Íslendingum fyrir mikilvægt frumkvæði og ómetanlegan stuðning við eistnesku þjóðina þegar hún var að brjótast undan oki Sovétríkjanna fyrir fimmtán árum. Þessu hlutverki Íslands myndi eistneska þjóðin aldrei gleyma".

Vissulega voru Færeyingar fyrstir til að rétta okkur hjálparhönd og því gleymum við aldrei, en þetta skref Norðmanna vigtar meira á alþjóða vettvangi og sýnir vonandi umheiminum að við erum traustsins verðir sem þjóð.


mbl.is Styðja lán til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Að  sögn núverandi utanríkisráðherra Færeyja sem áður gengdi starfi sjávarútvegsráðherra voru Færeyingar í djúpri kreppu í líkingu við þá sem hér er. Kreppan stafaði af bankagjaldþroti og aflabresti leiddi til gríðarlegs landflótta. Þetta varð  til þess að þeir afnámu kvótakerfið , það sama og er hér á landi, og komust þannig út úr kreppunni. 

Sigurður Þórðarson, 4.11.2008 kl. 01:02

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ertu að segja að Færeyingar veiði óheft úr fiskistofnum sínum? Hvernig eru fiskistofnarnir hjá þeim í dag?

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.11.2008 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband