Á að þvinga fram aðildarviðræður í Evrópusambandið?

Guðmundur Gunnarsson, formaður RSÍ. Nú er lag, hugsar sjálfsagt fólk sem er hlynt því að Íslendingar gangi í Evrópusambandið. Ef stjórnir lífeyrissjóðanna ætla sér að setja skilyrði fyrir eignatilflutningi sínum til landsins á þeim nótum, þá sé ég ekki að aðstoðar þeirra verði óskað í þeim vanda sem steðjar að þjóðinni í dag. Slík framkoma af hálfu Evrópusinnanna innan lífeyrissjóðakerfisins væri lúaleg, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Aðildarumsókn á ekki að vera afarkostur af hálfu lífeyrissjóðanna. Aðildarumsókn á að vera á allt öðrum forsendum ef til hennar kæmi.

abr0717l


mbl.is Verða að fallast á skilyrði sjóðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég get ekki séð í þessu viðtali að Guðmundur nefni neitt um evru, það sem ég get hinsvegar skilið er að þeir sem fara með forráð lífeyrissjóðanna ætlist til þess að þeir einir eigi ekki að koma að þessari björgun og farið verði með fé það sem þeim hefur verið treyst fyrir eins og hingað til hefur verið gert s.s. "án ábyrgðar" þetta eru ekki matador peningar, þetta er lífeyrir okkar, líka þinn. 

Mér finnst að þeir síni meiri ábyrgðartilfinniningu en ég hef hingað til séð hjá vorum háttvirtum seðlabankastjóra og hans jáherrum.

Katala (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 17:48

2 identicon

Gæti sú staða komið upp að þeir setji  pressu á að knýja fram Evrópuaðild í skiptum fyrir Lífeyrissjóðina,það væri lúaleg vinnubrögð sem yrði ekki samþykkt af þjóðinni.

Res (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 17:49

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Að sjálfsögðu eru þetta ekki matador-peningar og hugsanlegur flutningur fjár til landsins frá sjóðunum þurfa að vera tryggðir í bak og fyrir. En það á ekkert fleira að hanga á spýtunni.... við sjáum til

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.10.2008 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband