Er mannauðshallæri á Mbl.is?

Það er ekki sagt í fréttinni að snjórinn bráðni áður en hann fellur til Mars (jarðar Joyful) Hann gufar upp.

Hei, ef ykkur vantar þýðanda þarna á Mbl.is, þá er ég til í tuskið. Ég er í símaskránni.


mbl.is Snjókoma á Mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það kemur framm

"Snjórinn var raunar bráðnaður áður en hann lenti á yfirborði Mars."

Einar (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 18:29

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ekki bráðnaður, gufaður upp. "evaporation" = uppgufun

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.9.2008 kl. 18:48

3 identicon

Í eðlisfræðilegri röð hamskipta er þetta rétt hjá þeim. Til þess að ís verði að gufu þarf það að bráðna fyrst og inn á milli fer öll orkan í bráðnuninna áður en hún fer í að mynda uppgufun sem tekur mikla orku.

Ég veit samt ekki hvort það rigndi eða ekki á mars það hefði þurft að koma betur fram, en bæði möguleikarnir eru til staðar að það bráðnaði og gufaði upp áður en það féll til yfirborðs- og svo auðvitað að það rigndi.  Engin hefur svo sem rangt fyrir sér en þeir hefðu átt að skýra fréttina betur. 

gezim (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 19:19

4 Smámynd: Marilyn

ÉG ætlaði einmitt að spyrja hvort bráðnaður snjór þýddi ekki að það væri rigning en þetta er ss. snjór sem aldrei nær að falla alla leið.

Marilyn, 30.9.2008 kl. 22:58

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ís hagar sér ekki með sama hætti á mars og á jörðinni. Þar er ekki lofthjúpur eins og hér, annar loftþrýstingur.... o.s.f.v. Ég held að vatn geti ekki verið í vökvaformi þar eins og hér. Annars væri ekki úr vegi að spyrja Ágúst Bjarnason að þessu sem oft og tíðum er með frábært blogg um þessa hluti, sjá t.d. HÉR

En hvað um það, í fréttinni er talað um uppgufun en ekki bráðnun.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.10.2008 kl. 00:01

6 identicon

Iss, hafiði aldrei heyrt um þurrgufun (e. sublimation).

Eðlisfræðigaurinn (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 03:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband