Af hverju má ekki blogga um.......?

Mér finnst eðlilegt að blogg fái ekki að tengjast sviplegum fréttum af slysum og dauðsföllum á Mbl.is. En svo koma einstöku sinnum fréttir sem ekki má blogga og tengja við, sem ég fæ ómögulega séð að sé óviðurkvæmilegt eða ósanngjarnt. Þá velti ég því fyrir mér hver ástæðan geti verið.

Útlendingamál virðast viðkvæm þegar fjölmiðlum hentar það. Ef afbrot er framið og glæpamaðurinn er af erlendu bergi brotinn, þá er yfirleitt tíundað þjóðernið. Maður spyr sig stundum "Til hvers?".

Þegar útlendinga og innflytjendamál eru annars vegar, þá virðist ósýnilegur her helst vilja stjórna umræðunni og fjölmiðlar virðast hræddir við þennan her. Þetta er hópur fólks sem er ósameinaður í sjálfu sér en merkilega oft hliðhollur vinstri væng stjórnmálanna. "Þetta fólk" er haldið þeim hvimleiða misskilningi að það sé betra, réttsýnna og réttlátara en annað fólk.

Þessi ósýnilegi her er ástæðan fyrir því að Mbl.is vill ekki að bloggað sé um húsleit lögreglunnar hjá hælisleitendunum í Reykjanesbæ. Hælisleitendur eru fremstir píslarvotta réttlætisins, í augum þessara stofukomma.

Ég er farinn að verja óhuggulega löngum tíma sólarhringsins við tölvu. Ég vinn í 50% starfi fyrir framan tölvuskjá, ég er að vinna í 4 verkefnum sem ég þarf að skila í næstu viku í Háskólanum og svo er ég að lesa og skrifa blogg á milli þess sem ég les fréttir á netmiðlunum. Augun á mér eru að verða ferköntuð.

window 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband