Skordýrin í Króatíu

Köngulóin í krukkunni.  Ef einhver kvikindi berast inn í íbúðina okkar, er ég, útkastarinn, kallaður til. Mér finnst lítið mál að fást við íslensk skordýr, nema kannski margfætlur ef þær eru stórar. Fæ alltaf smá hroll þegar ég sé slíkt.

Þegar við fjölskyldan vorum í Króatíu í sumar þá var töluvert af maurum á veröndinni hjá okkur. Um tvær tegundir var að ræða, sú stærri 10-20 mm. á lengd en sú minni ekki nema 2-3 mm. Svo einkennilegt var að stóru maurarnir voru logandi hræddir við þá litlu og þegar þeir rákust á hvorn annan af tilviljun, þá flúðu þeir stóru felmtri slegnir. Stundum brá þeim svo mikið að þeir lentu á bakinu í felmtri sínu. Eitt sinn sá ég lítinn maur bíta þann stærri og hékk hann í honum meðan hinn barðist um á hæl og hnakka þar til honum tókst að bíta til baka en þá sleppti sá sá litli og lá óvígur eftir. Litlu maurarnir voru mun vinnusamari en þeir stóru og voru gjarnan að rogast með einhver matarkorn með sér, stundum 3-4 saman á meðan þeir stóru virtust bara vera í göngutúr.

064

Síðustu 2 dagana áður en við fórum heim fengum við svona heimsóknir í íbúðina. Í fyrra skiptið komu krakkarnir til mín með hryllingssvip á andlitunum út úr herbergi sínu og sögðu mér að það væri ógeðslegt kvikindi á veggnum við rúmið þeirra. Ég náði í klósettpappír og ætlaði að grípa ógeðið og henda svo í klósettið, en þegar ég sá ófreskjuna þá rann mér kalt vatn milli skinns og hörunds. Þetta var engin smásmíði, 8-9 cm á lengd! Þetta ætlaði ég sko ekki að taka á milli fingranna Crying

Kvikindið var á mótum lofts og veggjar og alveg grafkjurt. Ég náði í moppu og gekk titrandi af skelfingu og hrolli að dýrinu, miðaði vandlega með skaft-endanum og þegar ég átti örfáa sentimetra eftir að því, lét ég vaða. En ég lagði heldur mikinn kraft í þetta því ég hitti ekki kvikindið auk þess sem ég braut skaftið Undecided Dýrið tók á rás með leifturhraða og hlykkjaðist eins og snákur á ská niður vegginn, niður á gólf og undir rúmið. Ég og krakkarnir hlupum öskrandi út úr herberginu Blush

Þegar ég hafði jafnað mig svolítið og hert upp hugann, áræddi ég að kíkja undir rúmið og sá dýrið á veggnum undir rúminu við höfðagaflinn. Ég tók brotna moppuskaftið, andaði djúpt og miðaði aftur og nú hitti ég. Hljóðið sem kom var hrollvekjandi klessuhljóð, en dýrið var dautt.

Endir Tounge


mbl.is Risakönguló í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kvikindið á myndinni er svokölluð húsamargfætla. Þær eru nokkuð algengar í Bandaríkjunum. Þær eru öflug rándýr en meinlausar mönnum og þykja þarflegar stundum við að hreinsa út óværu á borð við silfurskottur í hýbýlum. Mjög stórar margfætlur (yfir 15 cm) geta hins vegar verið varasamar og ætti að láta alveg í friði. Þær skríða sjálfar út á endanum.

Gunnar (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 18:16

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta nafni

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.9.2008 kl. 19:45

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég þekki þessar allt of vel, þær eru hér í öllum stærðum jakk og ullabjakk

Sporðdrekinn, 5.9.2008 kl. 22:13

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvar ert þú í veröldinni Sporðdreki?

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.9.2008 kl. 22:33

5 Smámynd: Sporðdrekinn

usa

Sporðdrekinn, 6.9.2008 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband